Á sama tíma og verðbólguspár Seðlabankans versna til muna virðist mildari tónn sleginn í nýjustu yfirlýsingu peningastefnunefndar bankans. Hagfræðingar segja erfitt að lesa í stöðuna en ljóst er að trúðverðugleiki peningastefnunnar hefur beðið hnekki.
Þannig bendir Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og ráðgjafi á að enginn virðist hafa trú á því að Seðlabankinn muni koma verðbólgu í markmið í fyrirsjáanlegri framtíð en það er 2,5%.
Hann er gestur Spursmála ásamt Ernu Björgu Sverrisdóttur, aðalhagfræðingi Arion banka og þau spá í spilin í kjölfar þess að Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að hækka stýrivexti um 0,25 punkta í 7,75%.
Erna Björg bendir á að ný verðbólguspá Seðlabankans, sem birt var samhliða vaxtákvörðuninni dragi upp slíka mynd að flestir ef ekki allir hagfræðingar hefðu talið að hún kallaði á stærra skref átt til hækkunar en 25 punkta. Hún hefði að minnsta kosti á grunni þeirra gagna spáð 50 punkta hækkun.
Tilgáta um kortaveltutölur
Konráð bendir á að tölur tali í ólíkar áttir. Þannig hafi nýjar kortaveltutölur heimilanna fyrir nýliðinn mánuð birst á sama tíma og peningastefnunefnd Seðlabankans réði sínum ráðum. Þar birtist gríðarmikill samdráttur milli ára eða 8% á föstu verðlagi og þar er vísað í innlenda kortaveltu. Segist Konráð hreinlega ekki hafa trúað sínum eigin augum þegar kom að þessu.
Telur hann að gögn sem þessi kunni að hafa haft áhrif á ákvörðun nefndarinnar því að öðrum kosti sé hagfræðisvið bankans, sem vinnur verðbólguspá hans, og peningastefnunefndin ekki að líta hlutina sömu augum.