Parið hefur sést versla saman í Krónunni á Hallveigarstíg og að fá sér ís saman í ísbúðinni Huppu. Þá fóru þau nýlega saman í ferðalag um Malasíu og birtu myndir af sér frá bænum Penang og við Kinabatang-ánna.
Pálmi Kormákur er sonur leikstjórans Baltasars Kormáks og athafnakonunnar Lilju Pálmadóttir og lék aðalhlutverkið í kvikmynd föður síns, Snertingu, árið 2024. Hann var áður í sambandi með leikkonunni Unni Birnu Backman en það slitnaði upp úr sambandinu í fyrra.
Sjá einnig: Unnur Birna og Daði eru nýtt par
Guðrún Margrét Karlsdóttir er mikil tískupæja og hefur setið fyrir hjá TakkTakk, Blues Jewelry og Bokk sem er í eigu systur hennar, Jónínu Þórdísar Karlsdóttur. Fjögur ár skilja parið að, Pálmi Kormákur er fæddur árið 2000 en Guðrún árið 2004.