Leó páfi leggur í nýju páfabréfi sem gefið var út í morgun mikla áherslu á að hægja á þróun og uppgangi gervigreindar. Þetta er fyrsta páfabréf Leós fjórtánda, en hann sagði í upphafi embættistíðar sinnar að í gervigreind fælist ein helsta áskorun mannkynsins.
Í páfabréfinu, sem ber yfirskriftina Magnifica Humanitas, eða Hið stórfenglega mannkyn, segir meðal annars að varast beri að vopnvæða tæknina þar sem keppst væri að því að ná yfirburðum í krafti síöflugri algóritma og umfangsmeiri gagnasöfnunar.
Aldrei ætti að leyfa tækni að taka ákvarðanir um líf og dauða.
Af-vopnvæðing gervigreindartækni þyrfti ekki að standa framförum fyrir þrifum, heldur þyrfti einfaldlega að koma í veg fyrir að tæknin næði yfirráðum yfir mannkyni.
Páfi bætti við einni sneið til bandarískra yfirvalda og sagði að kenningin um réttlátt stríð, sem Donald Trump forseti hefur meðal annars beitt fyrir sig, sé úrelt. „Enginn algóritmi getur gert stríð siðferðislega réttlætanlegt.“
Baðst afsökunar á hlutverki kirkjunnar í þrælahaldi
Páfi baðst líka afsökunar á því hve seint kaþólska kirkjan fordæmdi þrælahald á sínum tíma. Það sé opið sár á minningu kristninnar.
Forverar Leós í embætti hafa vissulega fordæmt þátttöku kristinna í þrælahaldi fyrri tíma en yfirlýsingin í dag gengur lengra. Hann sagði að kirkjan sjálf hefði haldið þræla fram á miðaldir og ráðlagt evrópskum ráðamönnum um hvernig mætti réttlæta að hneppa „villutrúarfólk“ í ánauð.
Þá hafi þrælahald ekki verið fordæmt að öllu leyti fyrr en á nítjándu öld.
„Sannarlega getum við ekki dæmt liðna atburði eins og siðferðisleg viðmið hafi ekki þróast heldur alltaf verið til staðar. Hins vegar getum við hvorki horft framhjá né gert lítið úr þeirri töf sem varð á því að samfélagið og kirkjan fordæmdu það mein sem þrælahald er.“