Óviðunandi staða í málefnum margra hópa barna
Innleiðing „farsældarlaganna“ hefur ekki heppnast sem skyldi að mati Ríkisendurskoðunar. Börn með fjölþættan vanda, börn sem glíma við vímuefnavanda, fósturbörn og börn með fötlun njóti ekki nægilegra góðrar þjónustu. Beinn árangur af lögunum sé óljós enn sem komið er.
Ríkisendurskoðun beinir því til mennta- og menningarmálaráðuneytisins að bæta þurfi yfirsýn um stöðu barna og kortleggja hvað þurfi til að auka farsæld barna.
Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar um innleiðingu og framkvæmd farsældarlaganna svokölluðu, sem kynnt var fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í dag.
„Mennta- og barnamálaráðuneytið tekur undir að bæta þurfi heildaryfirsýn um stöðu barna og hvaða hindranir standa í vegi fyrir því að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi þegar hennar er þörf,“ segir í viðbrögðum ráðuneytisins við skýrslunni.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, eða farsældarlögin eins og þau voru kölluð, voru samþykkt 2021 og tóku gildi 1. janúar 2022. „Þeim er ætlað að stuðla að farsæld barna og er meginmarkmiðið að börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri og samfelldri þjónustu við hæfi án hindrana,“ segir í skýrslunni. „Lögin kveða á um að við framkvæmd þeirra skuli …