Breskur maður á fimmtugsaldri brenndist illa á typpi eftir að heitt vatn helltist yfir hann í flugvél. Maðurinn er mjög ósáttur við viðbrögð flugfélagsins og segir það ekki hafa tekið málið alvarlega.
Breska blaðið The Daily Star greinir frá þessu.
Hinn 41 árs gamli Nicholas Gibbs átti mjög slæma flugferð í desember síðastliðnum með flugfélaginu Virgin Atlantic frá Las Vegas í Bandaríkjunum til Lundúna. Helltist brennandi heitt kaffi yfir hann og brenndi illa.
„Þetta var eitthvað sem ég hef aldrei upplifað áður. Þetta hefur haft verulega slæm áhrif á líf mitt,“ segir Gibbs.
Að sögn Gibbs setti flugþjónn könnu með heitu kaffi á bakka sem var allt of fullur. Nokkrum sekúndum síðar datt kannan af bakkanum og helltist innihaldið yfir kjöltuna á Gibbs. Segir hann að bakkinn hafi ekki verið nógu traustur, verið yfirfullur og ekkert lok á kaffikönnunni.
Allir vissu
Gibbs fann fyrir gríðarlegum sársauka í klofinu. Hann segir hins vegar að starfsfólkið hafi brugðist mjög illa við.
„Virgin voru algjörlega gagnslaus frá upphafi til enda. Það hljóta að hafa liðið 20 mínútur þangað til að einhver gerði eitthvað, og það var bara að láta mig hafa vatn til þess að hella yfir klofið,“ segir Gibbs. „Síðan sat ég í bleytunni í klukkutíma, augljóslega mjög þjáður þangað til að loksins þau settu brunakrem á typpið á mér og settu umbúðir á það. Allir í flugvélinni vissu hvað hafði gerst og þetta var mjög vandræðalegt fyrir mig þegar flugþjónarnir voru að sinna mér. Þau hlógu og grínuðust með þetta líka sem hjálpaði ekki.“
Gibbs fékk parasetamól til að lina sársaukann og mjúkar joggingbuxur. Honum var einnig tjáð að hann myndi fá meiri aðhlynningu á Heathrow flugvelli eftir lendingu. En það reyndist ekki rétt, enginn kom til að sinna honum þar.
Slæmar blöðrur
„Á þessum tímapunkti voru búnar að myndast slæmar blöðrur á typpinu á mér og umbúðirnar voru byrjaðar að detta af,“ segir Gibbs. „Þetta var það seinasta sem ég heyrði frá Virgin. Engin símtöl til að athuga með mig, ekkert samtal, ekkert. Ég held að þau hafi ekki einu sinni tilkynnt þetta.“
Gibbs hefur nú stefnt Virgin Atlantic til greiðslu skaðabóta. Segir hann að slysið hafi haft mjög slæm áhrif á hann og fjölskyldu hans. Meðal annars hafi hann og eiginkona hans verið að reyna að eignast barn en þetta hafi eyðilagt þau plön í bili. Hann hafi ekki getað stundað kynlíf. Þá óttast hann að typpið sé varanlega afmyndað eftir brunann. Þetta hafi einnig haft mikil sálræn áhrif á hann.