Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði, segist ekki hafa gert kröfu um bæjarstjórastólinn í samstarfsviðræðum við Samfylkinguna og Viðreisn en upplýsir um jafnframt um að ráðinn hafi verið bæjarstjóri, Þórður Þórarinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
„Þar fáum við traustan og reyndan mann til verka, sem þekkir bæði stjórnsýslu og stjórnmál af eigin raun,“ segir Orri jafnframt í tilkynningu á Facebook-síðu sinni.
Orri segir ennfremur um þá ákvörðun að ganga til samstarfs við Samfylkinguna og Viðreisn:
„Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins tókum þessa ákvörðun að vel ígrunduðu máli. Markmið okkar var skýrt frá upphafi: að tryggja Hafnarfirði sterka, málefnalega og ábyrga stjórn næstu fjögur árin og koma stefnumálum Sjálfstæðisflokksins í framkvæmd.
Í viðræðum við Samfylkinguna og Viðreisn hefur ríkt góður andi, hreinskilni og gagnkvæmt traust. Þótt flokkarnir komi úr ólíkum áttum í stjórnmálum höfum við fundið sameiginlegan vilja til að vinna að hagsmunum Hafnarfjarðar og bæjarbúa.
Sá málefnasamningur sem nú liggur fyrir ber þess skýr merki.“
Tilkynninguna í heild má lesa með því að smella á tengilinn hér að neðan: