Orgelið er frá þýska framleiðandanum Steinmayer, kom fyrst til landsins árið 1970 og bættu dönsku orgelsmiðirnir Bruno Christensen & Sönner síðar einni bassarödd við orgelið. Það var notað til margra ára í helgihaldi Grensássóknar þar til nýtt orgel var tekið í notkun og var í kjölfarið ákveðið að gefa því nýtt líf í Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Að lokinni messu í Grensáskirkju sunnudaginn 16. ágúst síðastliðinn hélt hátt í þrjátíu manna hópur fólks úr söfnuðinum í ferð í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd til að fylgja orgelgjöfinni úr hlaði. Sameiginleg messa Grensássafnaðar og safnaðarins í Hallgrímskirkju fór fram af þessu tilefni klukkan 14 þann daginn.
Erik Pálsson, formaður sóknarnefndar Grensáskirkju, flutti ávarp við helgihaldið og afhenti formanni sóknarnefndar Hallgrímskirkju í Saurbæ innrammað skjal með texta um orgelið og gjöfina.
Hópurinn samanstóð meðal annars af kirkjukór Grensáskirkju, Ástu Haraldsdóttur organista, fulltrúum sóknarnefndar og safnaðarins. Séra Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur Grensáskirkju tók þátt í helgihaldinu, sem séra Þráinn Haraldsson og séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiddu, og lék Gréta Zimsen á fiðlu ásamt Rósu Jóhannesdóttur. Margrét Bóasdóttir fyrrum söngmálastjóri þjóðkirkjunnar stjórnaði sameiginlegum kór heimamanna og kirkjukórs Grensáskirkju við undirleik Ástu organista.
Að loknu helgihaldinu bauð sóknarnefndin og heimafólk upp á messukaffi í prestssetrinu í Saurbæ í blíðskapar veðri þar sem Hvalfjörðurinn skartaði sínu fegursta.