Breska götublaðið Metro greinir frá því að Kenny sem er samfélagsmiðlastjarna hafi eytt tveimur nóttum í íbúð sjónvarpskonunnar Mayu í London. Hann hafi svo fengið boð í Hrekkjavökuteiti hjá henni í íbúðinni sem er í norðurhluta London. Maya sem þekktust er hér á landi fyrir að stýra raunveruleikaþáttunum Love Island heldur teitið ár hvert og býður nokkrum stærstu stjörnum Bretlands.
Samkvæmt umfjöllun miðilsins þekktust þau Kenny og Maya ekki áður en þau eyddu mörgum dögum saman í skoskum kastala við tökur á þáttunum sem hafa öðlast heimsfrægð á undanförnum árum. Í þáttunum koma keppendur saman í skoskum kastala og eru tveir til þrír útnefndir svikarar. Svikarar geta myrt aðra keppendur í skjóli nætur sem þurfa að taka á hinum stóra sínum við hringborð hvert einasta kvöld þar sem einn keppandi er úthýst úr kastalanum með atkvæðagreiðslu.
Kenny klæddi sig í appelsínugulum fangabúning í Hrekkjavökuteitinu á meðan Maya Jama brá sér í búning breska ólympíukeppandans Mo Farrah. Samkvæmt breska blaðinu hafa þó nokkrar myndir birst af þeim Kenny og Maya Jama sem virðast hafa verið teknar í sama rýminu, líklega íbúðinni hennar. Það hafi ekki verið til þess að róa æsta aðdáendur sem vonast til þess að eitthvað sé til í orðrómi um ástir stjarnanna.