Orbán er hvergi af baki dottinn og hefur í hyggju að halda áfram að leiða flokk sinn Fidesz fái hann umboð til. Hann birti myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann tilkynnti um þetta.„Eins og er minna krafta ekki þörf á þingi heldur við endurskipulagningu flokksins á landsvísu,“ sagði hann.Fidesz-flokkurinn hlaut aðeins 52 sæti á ungverska þinginu í kosningunum eftir að hafa farið með stjórn landsins frá árinu 2010. Tisza-flokkur Péters Magyar fékk tvo þriðju þingsæta.
Orbán hættir á þingi - Vísir