Formleg opnun íþróttamiðstöðvarinnar og sundlaugarinnar verður klukkan fjögur í dag og verður blásið til sundlaugapartís. Fólk getur sótt zumba-tíma klukkan fimm og verður gestum boðið upp á ís og kaffi að sundferðinni lokinni.
Sundlaugin verður opin til klukkan tíu í kvöld.
Sundlaugin er þriðji áfangi í byggingu Urriðholtsskóla og nýrrar íþróttamiðstöðvar hverfisins. Um er að ræða innilaug, infrarauða saunu, heitan pott, vaðlaug og íþróttasal. Sundlaugin verður nýtt í kennslu skólasunds á virkum dögum en verður opin almenningi á milli klukkan 9 og 18 um helgar.
Alla virka daga verður hún opin frá 6:30 til 8 og svo 18 til 22.
Tvær sundlaugar eru fyrir í Garðabæ, Ásgarðslaug og Álftaneslaug.