Ölvun og ólæti ungmenna var nokkur á Ljósanótt í gær, en þá náði hátíðin hápunkti með stórtónleikum og flugeldasýningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.Eftir að formlegri dagskrá Ljósanætur lauk voru mörg verkefni hjá lögreglu sem tengdust ölvun. Fjórir gistu í fangageymslum eftir nóttina, meðal annars vegna líkamsárása og ölvunar. Enginn slasaðist þó alvarlega. Að öðru leyti bárust tilkynningar vegna óláta, ölvunar og eignaspjalla.
Ólvun og ólæti ungmenna á Ljósanótt