Olíuverð hríðféll í dag eftir að stjórnvöld í Íran fullyrtu að Hormússundi yrði haldið opnu á meðan að vopnahlé er í gildi. Sundið hefur formlega verið opnað fyrir umferð.
Starfslok eins ástsælasta kennara í Háskólanum í Reykjavík hafa orðið að gríðarlega vinsælu efni á samfélagsmiðlum. Hópur manns tók sig til og stóð heiðursvörð þegar hann lauk sínum síðasta kennsludegi á ferlinum. Við hittum hann í fréttatímanum.
Þá fjöllum við um svokölluð hristibretti sem hafa slegið í gegn á samfélagsmiðlum og verðum í beinni útsendingu frá Sundahöfn.
Þetta og fleira í kvöldfréttum Sýnar á slaginu 18:30.