Olíuverð hækkaði um tvö prósent þegar markaðir tóku til starfa í vikubyrjun. Þetta gerist eftir tíðindi helgarinnar um að ekkert verði af fundum bandarískra og íranskra sendimanna um stríðið í Miðausturlöndum.
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, kom til Moskvu, höfuðborgar Rússlands, í dag. Hann kenndi Bandaríkjamönnum um að ekki hefði náðst árangur í viðræðum til þessa. Hann sagði kröfuhörku Bandaríkjastjórnar standa í vegi fyrir samningum.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði um helgina að ekki hefðu borist nægilega góðar tillögur frá Írönum. Hann sagði þá þó hafa sent sér betri tillögur nokkrum mínútum eftir að hann hætti við að senda fulltrúa sína til viðræðna.
Fawad Razaqzada, hagfræðingur og markaðsgreinandi, skrifar á viðskiptavefnum Forex að olíuverð geti hækkað verulega hvenær sem er ef spenna við Persaflóa eykst eða átök brjótast út á ný. Hann segir að ólíklegt sé að verð lækki að ráði meðan þrengt sé að siglingum um Hormússund, hann telur auknar líkur á að verð fari yfir 110 dollara á fatið.