Ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir umferðarslys miðsvæðis í Reykjavík í gærkvöld eða nótt.
Minnst einn hlaut sekt fyrir hraðakstur að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og bifhjólamaður var sektaður fyrir að aka hjólinu án ökuréttinda og án öryggisbúnaðar ásamt því sem það var ekki rétt skráð.
Fjórir menn reyndu að brjótast inn í hús í úthverfi Kópavogs en á öryggismyndavélum má sjá þá forða sér þegar viðvörunarkerfi tók að óma. Átta gistu fangageymslur höfuðborgarsvæðisins í morgun.