Einn er látinn og tíu slasaðir eftir að ökumaður ók bifreið viljandi á hóp fólks fyrir framan lestarstöðina í Caen í Frakklandi á miðvikudagskvöld.
Sjö hinna slösuðu eru í lífshættu en þrír hlutu minniháttar áverka.
Átti sér stað eftir slagsmál
Atvikið varð um klukkan 22.15 að staðartíma. Samkvæmt fyrstu upplýsingum höfðu slagsmál brotist út nærri bar við lestarstöðina skömmu áður.
Ökumaðurinn settist í bifreið og ók viljandi á hóp fólks sem var á svæðinu. Hann flúði síðan af vettvangi en var handtekinn um 20 kílómetrum frá borginni síðar um kvöldið.
Hinn handtekni er 26 ára maður sem fæddur er í Rússlandi. Hann var ekki kunnur frönsku leyniþjónustunni og hafði aðeins áður komið við sögu lögreglu vegna umferðarlagabrota.
Samkvæmt fjölmiðlum heitir maðurinn Ibrahim I., en frönsk yfirvöld hafa ekki staðfest nafnið.
Hryðjuverk ekki talin líkleg ástæða
Rannsókn hefur verið hafin vegna morðs og árásar með banvænu vopni. Upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu eru meðal þess sem lögregla rannsakar.
Yfirvöld segja ekkert benda til hryðjuverkaárásar að svo stöddu. Rannsókn málsins sé þó aðeins á byrjunarstigi og ástæða slagsmálanna og atlögunnar liggi ekki fyrir.
Samkvæmt vitnum var hinn látni 18 eða 19 ára afganskur maður, en yfirvöld hafa ekki staðfest hver hann var.