Fólk sem leigir bústaði nálægt Hvolsvelli varar við suður kóreysku pari sem svindlaði sér inn í hús og skildi allt eftir í rúst. Litlu mátti muna að tjón yrði á bústaðnum eftir fólkið sem hafði afbókað sig en mætt samt.„Sem betur fer komum við í tæka tíð. En við vorum þrjú að þrífa í klukkutíma eftir fólkið sem var þarna í 4 eða 5 tíma í mesta lagi. Við náðum að forða tjóni og heppilegt að baðherbergið er dúkað frá gólfi og upp alla veggi,“ segir kona sem leigir hús nálægt Hvolsvelli í Rangárþingi.
Ófögnuður blasti við leigusölum við Hvolsvöll eftir svikapar – Túrblettir og klósettpappír út um allt og sprautað úr sturtuhausi