Frétt DV frá laugardeginum 5. september um linnulausar ofsóknir og einelti gagnvart þremur stúlkum, nýnemum í Fjölbrautarskóla Suðurnesja, vakti mikla athygli. Móðir einnar stúlkunnar segir í samtali við DV að lögregla og skóli hafi sýnt aukin viðbrögð við ástandinu eftir birtingu fréttarinnar. Ekkert hafi hins vegar dregið úr ofbeldinu sem hafi ef eitthvað er færst í aukana.
Ofbeldið heldur áfram gegn skólastúlkunum í Reykjanesbæ – Sögð hafa kastað sér fram af annarri hæð