Einar Geir Þorsteinsson, oddviti Miðflokksins í Hafnarfirði, gagnrýnir nýjan meirihluta Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar og segir samstarfið ganga þvert gegn vilja kjósenda í bænum.
Í færslu sinni á Facebook rifjar Einar upp að oddviti Sjálfstæðisflokksins hafi fyrir kosningar varað sérstaklega við vinstristjórn í Hafnarfirði og hvatt kjósendur til að hafna óvissuferð vinstrimanna. Hann segir marga Hafnfirðinga hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn í þeirri trú að flokkurinn myndi frekar leita samstarfs til hægri eftir kosningar.
Segir kjósendur hafa hafnað vinstriflokkum
Einar bendir á að Samfylkingin hafi tapað verulegu fylgi í kosningunum og að Vinstrið hafi ekki náð manni inn í bæjarstjórn. Á sama tíma hafi Miðflokkurinn stóraukið fylgi sitt úr 2,8% í 11,4%.
Hann segir niðurstöðurnar hafa verið skýr skilaboð frá kjósendum um að þeir vildu ekki sjá vinstristjórn í Hafnarfirði.
„En þrátt fyrir þetta hefur Sjálfstæðisflokkurinn ákveðið að mynda meirihluta með vinstri flokkunum,“ skrifar Einar.
Hann hafnar jafnframt þeim skýringum að samstarfið hafi verið síðasti kosturinn til að tryggja stöðugleika og segir Sjálfstæðisflokkinn hafa haft fleiri valkosti, meðal annars áframhaldandi samstarf við Framsókn eða möguleika á hægri meirihluta með Miðflokknum.
Undirskriftasöfnun gegn meirihlutanum
Mikil ólga hefur skapast í Hafnarfirði eftir að nýr meirihluti var kynntur. Samkvæmt frétt DV höfðu um þúsund manns skrifað undir mótmælalista á Ísland.is á áttunda tímanum í morgun þar sem nýja samstarfinu er mótmælt.
Í lýsingu undirskriftalistans segir meðal annars að með samstarfinu sé farið gegn skýrum vilja kjósenda og að ákvörðunin dragi úr trausti á stjórnmálum sveitarfélagsins.
Ekki hefur reiðin verið síðri á samfélagsmiðlum, þar sem margir gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn harðlega fyrir að starfa með Samfylkingunni, en þó benda aðrir á að nýi meirihlutinn hafi samanlagt meirihluta stuðnings kjósenda.
Einar segir að það sé lán fyrir Hafnfirðinga að Miðflokkurinn eigi nú fulltrúa í bæjarstjórn.
„Við munum svo sannarlega láta í okkur heyra og veita þessari nýju vinstristjórn, sem er mynduð þvert á vilja kjósenda, vægðarlaust aðhald.“