Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra, segir það fúlmennsku að hóta Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra, undir það taka fjölmargir, þar á meðal Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hagfræðingurinn Erna Bjarnadóttir og fjölmiðlamaðurinn Gunnar Smári Egilsson. Líkt og fjallað var um í morgun er nú lögreglan að rannsaka alvarlegar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar, beygði hún af þegar hún ræddi þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Óafsakanlegt að hóta Þorgerði Katrínu: „Hvílík fúlmennska!“