Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði í dag. Þegar öllum framkvæmdum lýkur verða þar 30 hjúkrunarrými, þremur fleiri en nú, og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Tekin var ákvörðun um að stækka hjúkrunarheimilið þannig að allir geti verið í sérherbergi.
„Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi heildarverkefnisins sem miðar að því að stórbæta aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk. Verkefnið felur í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins. Góð tengsl eru á milli einstakra hluta heimilisins og horft hefur verið til þess að nýta staðsetninguna og útsýnið sem best,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu og félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
„Þetta eru langþráð og mikilvæg tímamót. Hér mun fara vel um heimilisfólk. Starfsfólk Skjólgarðs á mikinn heiður skilið fyrir að gera Skjólgarð fyrr og nú að góðu heimili og hvernig þeim hefur tekist að byggja upp notalegan anda hér á heimilinu,“ er haft eftir Hjalta Þór Vignissyni, bæjarstjóra Hornafjarðar, í tilkynningunni. Hann óskar íbúum í Hornafirði innilega til hamingju með tímamótin.
Framkvæmdirnar hafa ekki gengið þrautalaust fyrir sig. Fyrr á þessu ári stefndi byggingarfyrirtækið Húsheild-Hyrna íslenska ríkinu. Fyrirtækið krafði ríkið um bætur upp á 850 milljónir króna vegna tjóns sem það taldi sig hafa orðið fyrir vegna kostnaðar og tafa við byggingu hjúkrunarheimilisins. Ríkið rifti samningum við fyrirtækið í október og samdi við Ístak um að klára verkið.