Hákon VIII er nýtt andlit konungsríkisins Noregs. Hann er 53 ára og yngra barn þeirra Haraldar konungs og Sonju drottningar. Konungdæmi Haraldar V hefur löngum verið lofað fyrir nútímalega ásýnd og samtímis mikla hógværð.
Áföll og hneykslismál hafa skekið það hressilega að undanförnu og Hákon gengur inn í nýtt hlutverk á þeim umbrotatímum. Þótt skoðanakannanir sýni að Hákon nýtur nánast sömu virðingar og faðir hans og Sonja móðir hans hefur fylgispekt Norðmanna við konungdæmið dalað verulega.
Nýja drottningin Mette Marit er í hringiðu hneykslismálanna vegna tengsla við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein og vegna ákæra á hendur syni hennar fyrir alvarleg afbrot.
Hún er ekki af konungakyni og var einstæð móðir þegar samband þeirra Hákonar hófst, eftir tónlistarhátíð í Noregi árið 1999. Hún átt stormasama fortíð að baki, sem olli talsverðu fjaðrafoki þegar sambandið komst í hámæli.
Konungshjónin eiga börnin Ingiríði Alexöndru ríkisarfa og Sverri Magnús prins, fædd 2004 og 2005. Hákon tók við konungstign í sömu andrá og Haraldur lést og ætlar að fylgja kjörorði hans: Noregi allt.
Haraldur sagðist í minningabók sem kom út fyrir nokkrum árum fagna því að Hákon væri ríkiserfingi og sagði allt verða í sóma þegar hans tími kæmi. Hákon konungur fæddist 20. júlí 1973 og gekk í ríkisrekna skóla að ósk foreldra sinna sem vildu sjá hann alast upp innan um „venjulega“ Norðmenn.
Hann hefur yndi af skíðamennsku líkt og margir Norðmenn ásamt brimbrettareið auk þess sem hann er mikill tónlistaráhugamaður. Hákon gegndi þjónustu í sjóher Noregs áður en hann lauk námi í stjórnmálafræði við Kaliforníuháskóla auk þess sem hann hefur meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics.
Sem ríkisarfi hefur Hákon lagt mikla áherslu á málefni sem hugleikin eru hans kynslóð, þar á meðal umhverfismál og mannréttindi. Könnun sem gerð var í mars sýndi að 80% Norðmanna telja Hákon verða góðan konung.