Eftir bæjarstjórnarkosningarnar árið 2022 mynduðu Framsókn, Samfylking og Bein leið nýjan meirihluta.
Kjartan Már Kjartansson hélt áfram störfum sem ráðinn bæjarstjóri á kjörtímabilinu en hann hefur gefið út að hann sækist ekki eftir að gegna stöðunni áfram. Því er ljóst að nýr bæjarstjóri tekur við í Reykjanesbæ að loknum kosningum.
Þeir flokkar sem nú eru í framboði til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar eru:
- B listi - Framsóknarflokkurinn
- C listi - Viðreisn
- D listi - Sjálfstæðisflokkurinn
- M listi - Miðflokkurinn
- S listi - Samfylkingin
Þangað til fyrstu tölur berast sýnir grafið hér að neðan niðurstöður síðustu kosninga, það er árið 2022.