Eftir bæjarstjórnarkosningarnar árið 2022 mynduðu Samfylking og Sjálfstæðisflokkur meirihluta þar sem Sævar Freyr Þráinsson var ráðinn til að gegna áfram embætti bæjarstjóri. Hann hætti á kjörtímabilinu og var Haraldur Benediktsson þá ráðinn bæjarstjóri. Haraldur lét svo af störfum nú á vordögum.
Þeir flokkar sem nú eru í framboði til bæjarstjórnar Akraness eru:
- B listi - Framsókn og frjálsir
- C listi - Viðreisn
- D listi - Sjálfstæðisflokkurinn
- M listi - Miðflokkurinn
- S listi - Samfylkingin
Þangað til fyrstu tölur berast sýnir grafið hér að neðan niðurstöður síðustu kosninga, það er árið 2022.