Til stendur að flytja barna- og menntamálaráðuneytið úr húsnæði sínu við Borgartún 33 og á Kalkofnsveg 2.
Ráðuneytið fluttist í Borgartúnið eftir að starfsaðstæður í Sölvhólsgötu 2 voru metnar óviðunandi vegna myglu og rakaskemmda.
„Markmiðið með flutningunum á Kalkofnsveg 2 er að vera við stjórnarráðsreitinn, í nálægð við önnur ráðuneyti, Umbru, sem er rekstrarfélag Stjórnarráðsins, og Alþingi,“ segir í skriflegu svari ráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.
Þar segir að aðstaða í Borgartúninu hafi verið viðunandi en að staðsetning húsnæðisins hafi verið ókostur. Ákvörðunin var tekin af Framkvæmdasýslu ríkisins, fjármála- og efnahagsráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.