Úkraínska þingið samþykkti í morgun tilnefningar Volodymyrs Zelenskys í embætti utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra. Spillingarrannsóknarstofnun landsins réðst í húsleitir í tengslum við rannsóknir á þingmönnum og ráðgjöfum forsetans.
Zelensky tilnefndi Andrii Sybiha í embætti utanríkisráðherra og Yevhen Khmara í embætti varnarmálaráðherra. Khmara hefur verið starfandi varnarmálaráðherra síðan Zelensky vék Mykhailo Federov úr embætti fyrir mánuði.
Morguninn var viðburðarríkur í úkraínskum stjórnmálum því auk nýrra ráðherra rak Zelensky Irynu Mudra, aðstoðaryfirmann skrifstofu forsetans. Þetta kom fram í yfirlýsingu á vefsíðu forsetaembættisins. Engin ástæða var gefin fyrir brottrekstrinum.
Spillingarrannsóknarstofnun Úkraínu, Nabu, auk saksóknaraembættis landsins réðst í húsleitir í morgun hjá háttsettu fólki innan stjórnkerfis landsins. Húsleitirnar eru hluti af rannsóknum stofnananna á þingmönnum og ráðgjöfum forsetans.
Stofnanirnar tvær segjast hafa uppgötvað hóp sem hafi þvegið rúmlega þrjár milljónir bandaríkjadala sem hafi verið notaðar til að greiða tryggingu í tengslum við spillingu í orkugeiranum.
Í hópnum hafi meðal annars verið aðstoðaryfirmaður forsetaembættisins, fyrrverandi þingmaður, formenn stjórna og eftirlitsnefnda fjármálastofnana. Einstaklingarnir voru ekki nafngreindir.