Krummafótur er ný sviðslistahátíð sem haldin er á Akureyri um helgina. Þau Þorbjörg Þóroddsdóttir og Stormur Thoroddsen, sem bæði stunda nám við sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands, eru skipuleggjendur hátíðarinnar.
Sviðshöfundarnir upprennandi segja hátíðina gefa Akureyringum og fólki um land allt tækifæri til að sýna grasrótarsviðslistir. Þau segja hugmyndina hafa kviknað í náminu.
Föttuðu að þau gætu gert þetta sjálf
„Við Stormur erum bæði í sviðshöfundanáminu í Listaháskólanum og erum svolítið dugleg að kvarta yfir því hvað allt sé Reykjavíkurmiðað og höfuðborgarmiðað og að allur peningurinn sé þar en ekkert á Akureyri og ákváðum að það þyrfti að gera eitthvað í því,“ segir Þorbjörg.
„Við föttuðum náttúrulega að við gætum bara gert þetta sjálf,“ segir Stormur.
Þau eru bæði Akureyringar, útskrifuð af sviðslistabraut Menntaskólans á Akureyri. Þau segja góðan jarðveg fyrir hátíð sem þessa í bænum, sérstaklega vegna sviðslistabrautarinnar sem er frekar nýleg.
Hamlet og pylsugjörningar
Níu sýningar og þrír gjörningar verða sýndir víðs vegar í bænum um helgina og sviðshöfundarnir segja alla geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Við erum með leiklestra og gjörninga og töfrasýningar og Hamlet og pylsugjörninga og alls konar,“ segir Þorbjörg.
„Þetta er allt frítt og við bjóðum oft upp á léttar veitingar eða pylsur eða drykki. Þannig að bara endilega komið og kíkið og fáið smá menningu í æðarnar,“ bætir Stormur við.