Jafnaðarmannaflokkurinn, flokkur Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur, hefur náð saman við Sósíalíska þjóðarflokkinn, Moderaterna og Radikale, um myndun nýrrar ríkisstjórnar í Danmörku.
Frederiksen greindi frá þessu á fundi með Friðriki Danakonungi í Óðinsvéum í kvöld.
Erfitt hefur reynst að mynda ríkisstjórn í Danmörku eftir að gengið var til kosninga í lok mars þar sem ríkisstjórn Jafnaðarmannflokksins, Venstre og Moderaterne féll.
Frederiksen vildi ekki ræða um stjórnmálin við blaðamenn sem biðu hennar eftir að hún yfirgaf fund konungs heldur sagði það geta beðið til morguns.