Hluthafar í Norðurorku samþykktu ekki fyrirhugaðar hækkanir fyrirtækisins á hita og rafmagni við Eyjafjörð og vísuðu fjárhagsáætlun aftur til stjórnar.
Akureyri.net sagði fyrst frá þessu. Forstjóri Norðurorku staðfesti við fréttastofu að málið verði tekið aftur upp á fundi á morgun.
Meirihluti stjórnarinnar hafði áður samþykkt gjaldskrárhækkanir til íbúa upp á allt að sjö prósent. Akureyrarbær á meira en 98% hlut í Norðurorku og ráðamenn þess hétu því að gjaldskrár sveitarfélagsins yrðu ekki hækkaðar um meira en 2,5%, til að stemma stigu við verðbólgu í landinu.
Hækkanir ekki yfir 2,5%
Áformin um verðhækkanir umfram það hlutu því talsverða gagnrýni. Bæjarstóri Akureyrar sagði þetta ekki í takt við þjóðarsátt um að hið opinbera héldi aftur af hækkunum. Tilmæli til stjórnar eftir fundinn í morgun er að 2,5 prósenta þak verði sett á hækkanir og leitað annarra leiða til að fjármagna stór verkefni sem eru fram undan hjá Norðurorku.