Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs segir að Norðmenn ættu að fylgjast vel með þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi í lok ágúst um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann býst þó ekki við að niðurstaðan hvor sem hún verður muni hafa afgerandi áhrif á álit norsku þjóðarinnar á því hvað gera eigi varðandi tengsl Noregs og ríkja innan ESB í framtíðinni.
Sagt er frá þessum ummælum í fjölmiðlinum Euractiv en Støre lét þessi orð falla fyrr í dag eftir fund með Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB.
Støre segir að Noregur eigi að fylgjast með því hvað Ísland er að gera í þessum efnum og það eigi að hafa áhrif á viðhorf Norðmanna.
Fari svo á endanum að Ísland gangi í ESB verða Noregur og Liechtenstein einu ríkin innan EES sem væru ekki aðilar að sambandinu. Forsætisráðherrann á þó ekki von á að niðurstaðan á Íslandi hafi afgerandi áhrif á almenningsálitið í Noregi. Minnir hann á að tvisvar hafi Norðmenn hafnað því í þjóðaratkvæðagreiðslu að ganga í ESB en í fyrra skiptið hafi á sama tíma Danir samþykkt inngöngu og í það seinna Svíar og Finnar.
Segir Støre að fyrir Noreg skipti aðstæður landsins mestu fremur en það sem sé að gerast í nágrannaríkjunum en samt eigi Noregur að fylgjast með hvað hin íslenska vinaþjóð geri.
Støre var einnig spurður um hugmyndir nokkurra ESB-ríkja um að ný ríki ættu fyrst um sinn ekki að hafa atkvæðisrétt um ákveðin lykilmálefni. Hann vildi ekki tjá sig um þetta og vísaði til þess að Noregur hefði ekki sótt um aðild og þetta væri málefni ríkja sambandsins.