Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin - DV

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin - DV

Nína Richter skrifar: Síðasta kaffikynslóðin - DV

Það var kaldur vormorgunn og fyrir utan háskólabygginguna í Nauthólsvíkinni stóðu fiskikör, smekkfull af ís og afurðum. Ungt fólk stóð í hnapp yfir körunum og teygði vettlingalausa loppna fingur ofan í klakann, mis-appelsínugula af brúnkukremstilburðum gærkvöldsins. En það var ekki silfur hafsins sem mætti köldum fingrunum heldur önnur íslensk útflutningsvara: álið. Dósir fullar af koffíni og sætuefnum.

Það var engu líkara en prófessorinn væri að tala undir flugeldasýningu þessar fyrstu mínútur skóladagsins. „Ágætu nemendur, [kviss] í dag ætlum við að tala áfram um [kviss] kenningar H.L.A. Hart [kviss] um boðvaldið [kviss, kviss kviss.]“ Næringarbættur gosdrykkur seytlaði niður kverkar nemenda sem nærðu andann um leið. Nú skyldi „læst inn.“

Það var ákveðin manndómsvígsla að kynnast koffíninu. Mér hafði alltaf þótt lyktin af kaffiduftinu góð, minnti svolítið á súkkulaði. Árin liðu og fyrsti bollinn var keyptur eftir tíma í MA í Listagilinu á Akureyri. Kaffi mokka með rjóma og auka sírópi. Verðið á herlegheitunum var á við bíómiða. Síðan sat hópurinn í hring með ullarhúfur inni og ræddi David Hume og nýju plötuna með Radiohead. Á milli þess gerðum við grín að aflituðu drottningarskinkunum sem versluðu í Gallerí 17 og fóru á rúntinn. Þær myndu aldrei drekka kaffi; það litaði tennurnar og þær stefndu allar á þátttöku í Ungfrú Norðurland. Við hin vorum ekki bara gáfuð, við vorum líka fullorðin.

Flestum fannst kaffið vont. Eins og með vín og tóbak þurfti fyrst að læra á löstinn. Svo varð hann að vana og loks að einhvers konar gullþræði sem saumaður var í gegnum vikuna eftir efnahag. Kaffið kólnaði í hnausþykkum hvítum bollum á meðan við sátum með skólabækur og þóttumst lesa, en vorum aðallega að skima eftir því hver væri að horfa á okkur þykjast lesa og drekka kaffi. Ég man sérstaklega eftir að hafa mætt með frönskubækur á kaffihús í röndóttum bol. Ég féll á prófinu, en fyrstu útgáfur af Google Translate komu út um þetta leyti, sem gerði mér kleift að skrifa nokkrar línur á frönsku á bloggið mitt um þessa kaffihúsaferð í París norðursins.

Nú berast fregnir af því að Kaffitár sé að loka í Háskólanum í Reykjavík. Það er ekki hægt að selja nemendum kaffi lengur. Aðeins tvær eða þrjár manneskjur drekka kaffi í hverjum fyrirlestri; kennarinn og síðan elsti nemandinn. Manndómsvígslan sem fylgdi því að sitja með kaldan bolla á kaffihúsi og tilheyra költinu sem dýrkaði svarta baunasafann virðist liðin undir lok. Hún fer á Þjóðminjasafnið með línulegri dagskrá, heimasímanum og geisladisknum.

Kaffið sjálft er líka að hverfa inn í lúxusflokkinn. Loftslagsbreytingar hafa farið illa með uppskeru í Brasilíu og Víetnam; fyrst þurrkar, síðan flóð og svo aftur þurrkar. Kaffiplönturnar virðast lifa í einhvers konar veðurfarslegu taugaáfalli. Á meðan eykst eftirspurnin stöðugt, meðal annars í Kína og á Indlandi, og heimsmarkaðurinn hagar sér eins og heimsmarkaðir gera alltaf þegar eitthvað verður sjaldgæfara: einhver græðir og allir hinir borga meira fyrir latteið sitt. Við þetta bætast hækkandi flutningskostnaður, verðbólga, orkukostnaður og tollastefna heimsins sem nú virðist rekin af mönnum sem halda að viðskiptastríð séu raunveruleikaþáttur. Kaffi er hægt og rólega að verða lúxusvara á ný.

Yngri kynslóðir virðast þó kæra sig kollóttar. Þær þrá eitthvað annað sem bragðast eins og bræddur íspinni, inniheldur 180 milligrömm af koffíni og lofar „fókus“ með leturgerð frá 2007.

Kannski vorum við síðasta kaffikynslóðin.

Það er við hæfi að ljúka þessum pistli á ljóðlínum eftir Andra Ólafsson og Steingrím Teague úr Moses Hightower:

Blessuð alla tíð sé baunin þín
Brennd og ilmandi
Sem að alla leið frá Eþíópí
Barst hér að landi
Og einkum til mín.

#kaffikynslóðin #nína #richter #skrifar #síðasta


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/8/nina-richter-skrifar-sidasta-kaffikynslodin/

📰 Aðrar fréttir

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 0
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun ...
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
📅 16.08.2026 👁️ 0
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
Margir Íslendingar bera örugglega nostalgískar tilfinningar í brjósti í garð hringvegarins um Ísland. Slíkar minningar eru oft tengdar ferðalögum úr æ...
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
📅 16.08.2026 👁️ 0
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar ...
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 1
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 1
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 1
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 1
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 1
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 1
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 1
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 1
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 1
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 1
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betu...
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun m...
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn b...
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á...
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburð...
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
Major incidents are declared across the UK including in Stourbridge, Sandwell and Pershore.
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að híf...
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar,...
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig.
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
📅 15.08.2026 👁️ 1
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið landsmenn að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskól...
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys BoteachFramkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi ...
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt honum er svo mjótt á munum fylkinganna að hann er ekki tölfræðilega marktækur en 51,5% þeirra se...
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endu...
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
📅 15.08.2026 👁️ 1
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
Ný tegund skipulagðrar glæpastarfsemi hefur vaxið hratt samhliða aukinni útbreiðslu rafmynta. Í stað þess að reyna að brjótast í gegnum flókin öryggis...
Varaði við unglingum í Vesturbænum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Varaði við unglingum í Vesturbænum
Varaði við unglingum í Vesturbænum Pablo Santos hvetur til yfirvegunar:„Ást og kærleikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan Nýleg myndbirting...
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
📅 15.08.2026 👁️ 1
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
An 18-year-old man has been arrested in south Tenerife after allegedly physically assaulting his mother during an incident at their family home in Gra...
Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Segir varanlegar undanþágur í boði: „Það heitir sérlausnir“
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að varanlegar undanþágur séu í boði þegar ríki sækja um aðild að Evrópusambandinu.„Þær eru í boði, ...
Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 0
Stiklusúpa: Sturlað leikja­haust og vetur í vændum - Vísir
Við getum þó huggað okkur við það að haustið er yfirleitt alltaf, stundum, besti tími ársins til að spila tölvuleiki. Þetta haust virðist ætla að vera...
Halldór Jörgen Olesen: Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira á mánuði í húsnæðislán vegna krónunnar
📅 15.08.2026 👁️ 1
Halldór Jörgen Olesen: Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira á mánuði í húsnæðislán vegna krónunnar
Íslensk fjölskylda borgar 150 þúsund meira af sínu húsnæðisláni á mánuði en fjölskylda á evrusvæðinu. Þessir peningar fara í að skapa hagnað bankanna ...
Ó­sátt með fyrir­hugaða sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ó­sátt með fyrir­hugaða sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðsins sem fundaði í vikunni. Þar er vísað í bókun S. S. S. á þeirra eigin fundi. „S. S. S. tekur undir að mikilvæ...
Hæfileikakeppni gæludýra á Hellu
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hæfileikakeppni gæludýra á Hellu
Fjölbreytt dagskrá er í boði á bæjarhátíðinni Tðugjöldum í Rangárþingi ytra um helgina. Eitt af atriðum dagsins í dag er hæfileikakeppni gæludýra.Töðu...
Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Grind­vískir krakkar sneru aftur á völlinn - Vísir
Eftir rýminguna í Grindavík þann 10. nóvember 2023 fór íþróttastarf barna í Grindavík í uppnám. Þá um veturinn var haldið úti æfingum í knattspyrnu og...