Spánn stendur frammi fyrir stærstu kreppu á síðari tímum.
Það virðist þó ekki hafa mikil áhrif á forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez. Fyrir nokkrum dögum flaug hann til Lanzarote þar sem hann á lúxusorlofshús. Þar dvelur hann næstu fjórar viku í sumarfrí – lengra frí en nokkur annar evrópskur leiðtogi tekur, samkvæmt BILD.
Hann fer í langt sumarfrí á sama tíma og Spánn glímir við mikla þurrka og reynir að halda umfangsmiklum skógareldum í skefjum. Horfur eru jafnframt á að ástandið muni aðeins versna á næstu vikum.
Í spænsku sjálfstjórnarsvæðinu Ceuta vofir yfir mannúðarkreppa. Sánchez telur að sú kreppa sé yfirstaðin, en íbúarnir eru því ósammála. Mikil mótmæli hafa verið gegn Sánchez, einkum í Ceuta, þar sem margir telja sig hafa verið svikna.
ESB ekki sammála
Leiðtogar Evrópusambandsins eru á sömu skoðun og fólkið. Það er kreppa í Ceuta. Í dag funda innanríkisráðherrar ESB og aðrir ráðherrar sem fara með málefni innflytjenda um vandann sem tengist ólöglegum innflytjendum og innrásinni á Spán.
Á fimmtudag fóru 50.000–60.000 manna innrásarher ólöglegra innflytjenda yfir landamærin til spænska sjálfstjórnarsvæðisins Ceuta á örfáum klukkustundum. Ringulreið skapaðist í litlu hafnarborginni. Tugir innflytjenda drukknuðu eða létust eftir að hafa orðið undir í mannþröng. Þar á meðal börn.
Mikil ólæti hafa verið í borginni og innflytjendur unnið skemmdarverk á nánast öllu sem þeir gátu hönd á fest. Brotist inn í hús og verslanir, eldar kveiktir.
Það eru 862 fylgdarlaus ólögráða börn skráð í Ceuta, en opinber móttökuaðstaða hefur aðeins pláss fyrir 29. Samkvæmt reglugerð ESB ber að vernda þessi börn en felst þeirra eru hálffullorðnir karlmenn. Að margra mati ætti að vísa þeim til síns heima eins og öðrum sem tóku þátt í þessari innrás.
Hafa snúið aftur
Margir úr innrásarhernum hafa snúið aftur til Marokkó, en nokkur hundruð eru enn á svæðinu og sofa á götum og í almenningsgörðum. Hafnarborgin Ceuta ræður ekki við að útvega öllum þessum ólöglega innrásarher mat og húsaskjól, en hefur jafnframt ekki heimild til að flytja þá til meginlands Spánar.
Samkvæmt Euronews höfðu leyniþjónustur varað spænsk stjórnvöld við yfirvofandi bylgju innflytjenda. Fullyrt er að stjórnvöld hafi „kerfisbundið hunsað“ þessar viðvaranir.
ESB óttast að hluti hinna fjölmörgu ólöglegu innflytjenda, sem mynduðu innrásarherinn, komist til meginlands Spánar og þaðan áfram inn á önnur svæði sambandsins.
Jafnframt óttast ESB að Spánn hafi ekki nægilegt eftirlit með landamærunum að Marokkó og að nýjar stórar bylgjur innrásarherja með ólöglega innflytjendur geti þannig borist til Evrópu. Landamæri Ceuta að Marokkó eru jafnframt hluti af ytri landamærum Evrópusambandsins.
Það væri kannski skynsamt hjá ESB að senda landamæraeftirlit á staðinn úr því Spánverjar hafa ekki dug og getu í sér til að stoppa svona innrás. Skiptir alla Evrópu máli.
Ósátt við Spán
Ríki ESB eru afar ósátt við undirbúning Spánar að því að veita um milljón ólöglegra innflytjenda búsetu.
Forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, hefur þegar lokað landamærunum fyrir fólki sem kemur frá Spáni. Þar með sé sjálft Schengen-samstarfið um opin landamæri í húfi.
Íslendingar eig að skoða það af fullri alvöru að segja sig úr Schengen og passa eigin landamæri betur en nú er gert.
Öll þessi mál verða rædd á ráðherrafundi ESB í dag.
Á meðan nýtur Sánchez sumarfrísins á Lanzarote í lúxusbústaðnum sínum, sem hefur sundlaug, tennisvöld og annan lúxus til að gera dvöl hans ánægjulegri.
Síðast liðinn laugardag birti Sánchez færslu á Instagram þar sem hann mælti með uppáhaldslögum sínum fyrir sumarið. Þessi maður hefur sannað fyrir Spánverjum, og heiminum öllum, hve óhæfur stjórnandi hann er.
Í Ávila-héraði hafa 47.000 hektarar brunnið í stærsta skógareldi í nýlegri sögu Spánar. Nú er önnur hitabylgja á leiðinni. Á meðan nýtur forsætisráðherrann sólarinnar. (BILD)
Helga Dögg Sverrisdóttir