Þrír danskir drengir hafa verið handteknir fyrir tilraun til hryðjuverka. Þeir eru grunaðir um að hafa skipulagt árás á ungmenni í grunnskólanum Hadsten í Danmörku.
Tveir drengjanna eru sextán ára gamlir og sá þriðji fimmtán ára. Þeir voru leiddir fyrir dómara í gær og úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 31. ágúst. Þar sem allir ákærðu eru undir lögaldri verða þeir færðir á stofnun fyrir ungmenni en ekki í fangelsi meðan málið sætir rannsókn.
Ástæðan að baki árásarinnar enn á huldu
Meint brot drengjanna snýr að 114. grein danskra hegningarlaga, sem er gjarnan kölluð hryðjuverkagreinin. Þeim er gefið að sök að hafa lagt á ráðin um að særa eða myrða fjölda nemenda í Hadsten-grunnskólanum í sveitarfélaginu Farskov á Austur-Jótlandi. Allir þrír hafa neitað sök.
Drengirnir, sem allir eru með danskan ríkisborgararétt, áttu í reglulegum samskiptum á samskiptaforritunum Discord og Teleram þar sem þeir skipulögðu árásina. Enginn þeirra býr í Farskov og ekki er vitað hvers vegna þeir hugðust gera árás á skólann.
Anders Uhrskov, fulltrúi lögreglunnar á Jótlandi, segir málið litið alvarlegum augum. Drengirnir hafi haft í hyggju að gera árás á skólann með sprengjum og öðrum vopnum.
Í yfirlýsingu dönsku ríkislögreglunnar segir að fyrirætlanir drengjanna um að gera árás á skólann séu einangrað atvik. Þeir hafi verið handteknir og þar af leiðandi sé engin frekari hætta á ferðum.