Maðurinn sem lést, þegar bifhjól og bifreið úr gagnstæðum áttum skullu saman austan við Vík í Mýrdal á laugardaginn hét Bergur Einarsson og var 55 ára gamall skipstjóri búsettur á Fáskrúðsfirði.
Frá þessu greina Vísir og fleiri fjölmiðlar og vitna í tilkynningu frá aðstandendum Bergs.
Lögreglan á Suðurlandi og rannsóknarnefnd samgönguslysa vinna nú að rannsókn á tildrögum slyssins.