Land rís við Svartsengi og kvikusöfnun er áfram stöðug. Um 30 milljónir rúmmetra af kviku hafa safnast undir Svartsengi og mælist þróunin áfram hæg en stöðug. Þetta kemur fram í uppfærðu hættumati Veðurstofu Íslands.
Í fyrri gosum á Sundhnúksgígaröðinni höfðu mest safnast 23 milljónir rúmmetra kviku þegar eldgos hófst. Með áframhaldandi kvikusöfnun er líklegasta sviðsmyndin enn sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi og yfir í Sundhnúksgígaröðina sem gæti leitt til eldgoss.
Jarðskjálftavirkni á svæðinu er heldur lítil og helst hættumat óbreytt.
Þann 16. júlí var eitt ár liðið frá seinasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni. Eldsumbrotin á Reykjanesskaga hófust árið 2021. Gosin eru orðin tólf, þar af níu þeirra á Sundhnúksgígaröðinni.
Eldgosið sem hófst fyrir ári síðan stóð yfir í þrjár vikur. Kvikuhlaup hófst rétt fyrir miðnætti 15. júlí með ákafri jarðskjálftahrinu og rétt fyrir klukkan fjögur aðfararnótt 16. júlí hófst eldgos.