Í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans var greint frá því að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við Flensborgarhöfn væri farið út um þúfur þar sem Hafnarfjarðarbæ hafi ekki tekist að útvega skólanum lóð líkt og fyrirhugað var.
Þar kom einnig fram að ekki væri svigrúm til frekari tafa á verkefninu en undirbúningur og hönnun nýbyggingarinnar hefur nú þegar tafist um marga mánuði. Því muni forsvarsmenn skólans kanna aðra möguleika á framtíðarstaðsetningu skólans á höfuðborgarsvæðinu.
„Fór þá auðvitað strax af stað“
Þennan bolta virðist Reykjavíkurborg ætla að grípa á lofti því í viðtali í Kastljósinu á Rúv í gær sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri að hún vilji sjá nýjan Tækniskóla rísa í Reykjavík.
Sagði hún að þegar hafi verið rætt um að skólinn rísi á lóð í Höllum í Úlfarsárdal.
„Ég hafði nú heyrt af þessu einhverju fyrr og fór þá auðvitað strax af stað vegna þess að ég var mjög gagnrýnin á það á sínum tíma þegar Reykjavíkurborg hljóp ekki nægilega hratt og tryggði að nýr Tækniskóli myndi rísa hér í höfuðborginu,“ sagði Hildur meðal annars í Kastljósinu.
Væri öflugt fyrir efri byggðir
Sagði Hildur að búið væri að finna lóð í Höllum í Úlfarsárdal sem hún telji að gæti hentað skólanum sem gæti orðið flaggskip iðn- og tæknimenntunar á Íslandi.
„Ég vil nýjan Tækniskóla í Reykjavík. Það væri gríðarlega öflugt fyrir efri byggðir að fá svona stóran og öflugan skólan og vinnustað þangað,“ sagði Hildur enn fremur.
Fimm ár eru síðan talið var að búið væri að finna framtíðarlausn á húsnæðisvanda Tækniskólans þegar fulltrúar ríkisstjórnarinnar, Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans undirrituðu viljayfirlýsingu um að byggja nýtt húsnæði við Suðurhöfn í Hafnarfirði.
Í umfjöllun Rúv fyrir helgi kom fram að bærinn hafi gefið skólanum vilyrði um að byggja nýjan skóla á lóð sem þegar væri í notkun. Áformin hafi komið eigendum húss sem stóð á lóðinni í opna skjöldu og bæjaryfirvöld ekki rætt við eigendurna í marga mánuði auk þess sem tilboð bæjarins í húsin á lóðinni hafi verið óásættanlegt.