Ökumaður á mótorhjóli slasaðist í Dýrafjarðargöngum á sjöunda tímanum í kvöld. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Ísafirði, segir sjúkraflutningamenn, lækni og lögreglu á vettvangi.
Göngin eru á milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Mótorhjólamaðurinn missti stjórn á hjólinu, skall utan í gangnavegginn og missti meðvitund. Hlynur segir hann kominn til meðvitundar og að slysið virðist ekki mjög alvarlegt.
Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar. Upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir báðar þyrlur hennar á leið til Reykjavíkur frá Austurlandi. Hann gerir ráð fyrir að önnur þeirra taki eldsneyti í Reykjavík og haldi síðan vestur.
Fréttin hefur verið uppfærð. Áður kom fram að slysið hefði verið í Vestfjarðagöngum en rétt er að það var í Dýrafjarðargöngum.