Ákæruvaldið fer fram á að dómari við Héraðsdóm Reykjaness hafni frávísunarkröfu Skúla Tómasar Gunnlaugssonar hjartalæknis.
Skúli er ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn en til vara manndráp af gáleysi og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn fyrir að hafa svipt konu á áttræðisaldri lífi þegar hún lá inni á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja árið 2019.
Þetta kom fram í máli Sigurðar Ólafssonar saksóknara í héraðsdómi í dag þar sem munnlegur málflutningur í frávísunarkröfu Skúla var tekinn fyrir.
Almar Þór Möller, verjandi Skúla, ítrekaði kröfu umbjóðanda síns um að málinu yrði vísað frá dómi.
Skúli hefur frá upphafi máls neitað sök.
Sækjandi og verjandi tókust á um lagaleg tæknileg atriði og vísuðu m.a. í norska dóma sér til stuðnings.
Dómurinn mun úrskurða um frávísunarkröfuna innan fjögurra vikna.
Þung lyfjameðferð leiddi til andláts
Konan sem lét lífið var 73 ára og hét Dana Jóhannsdóttir.
Í ákærunni yfir Skúla segir að Skúli hafi sett Dönu í „lífslokameðferð sama dag þrátt fyrir að Dana hafi ekki verið með lífsógnandi sjúkdóm og tók ákvörðun um og sá til þess að Dönu yrðu gefin slævandi lyf“.
Segir í ákærunni að Dana hafi fengið morfín og morfínskyld lyf, Leponex og Dormicum.
„[...] og leiddi þessi þunga lyfjameðferð til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar,“ segir í ákærunni.
