Viðbúnaður við Dalsbú í Mosfellsbæ hefur verið minnkaður. Bæjarstjóri Mosfellsbæjar segir síðustu daga hafa verið rólega, lítið af tilkynningum hafi borist og engir minkar hafi skilað sér í gildrurnar síðustu daga.
Allra leiða hefur verið leitað til þess að handsama þá þúsundir minka sem sluppu úr loðdýrabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal 29. júlí. Hilmar Gunnarsson bæjarstjóri segir aðgerðirnar hafa gengið vonum framar.
„Við ákváðum bara eftir nokkra rólega daga að draga úr viðbragði enda hefur þetta gengið vonum framar, það er lítið af tilkynningum að berast og engir að koma í gildrurnar hér í kring þannig að viðbragðið er með lægra móti núna.“
Sólahringsvaktir afnumdar
Staðnar hafa verið sólahringsvaktir á Dalsbúinu frá innbrotinu. Nú þegar viðbragð hefur verið lækkað hafa vaktirnar verið afnumdar en Hilmar segir Mosfellsbæ þó enn taka við ábendingum rekist íbúar á minka. Einn minkur fannst í Mosfellsdal um helgina og var hann aflífaður en í heildina hafa hátt í þúsund minkar verið aflífaðir.
„Það eru allavega sárafáir minkar að sleppa frá búinu og/eða sem við finnum hérna í grenndinni, það er góðs viti. “
Eru Mosfellingar þá almennt að róast aðeins yfir þessu?
„Já, það er búið að róast heilmikið í þessu minkastússi okkar.“
Aðkoma Mosfellsbæjar að málinu er nú minni og tekur Matvælastofnun við keflinu, þá greinir hún stöðuna betur og ákvarðar framhaldið.