Lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið voru kölluð til vegna minniháttar umferðarslyss ofarlega í Kömbunum í kvöld þegar bíll valt utan vegar. Engin alvarleg slys urðu á fólki.
Þetta staðfestir Bjarki Oddsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.
Bjarki segir unnið að því að ná bílnum upp á veginn. Hann segir fjölmennt viðbragðslið hafa verið kallað til, fyrst og fremst vegna lélegs skyggnis og mikillar þoku á svæðinu.
Einhverjar tafir gætu orðið á umferð um Kambana á meðan unnið er á slysstað, segir Bjarki.