Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofunnar.
„Í dag verður suðaustlæg átt 3-10 m/s. Stöku skúrir víða um land, en samfelld rigning um tíma á suðaustanverðu landinu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á morgun, sjómannadaginn, er útlit fyrir hæga breytilega átt með stöku skúrum, en rigningu af og til um austanvert landið. Hiti 10 til 15 stig. Snýst í norðlæga átt 3-10 m/s annað kvöld.“
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á sunnudag (sjómannadagurinn):
Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Rigning með köflum á austanverðu landinu en sums staðar skúrir vestantil, einkum síðdegis. Snýst í norðlæga átt seinnipartinn.
Hiti 8 til 16 stig.
Á mánudag:
Austan 8-15 við norður- og austurströndina, annars hægari vindur. Rigning eða skúrir, hiti 8 til 14 stig.
Á þriðjudag:
Austlæg átt 3-10 m/s. Rigning suðaustantil og líkur á skúrum annars staðar, einkum síðdegis, en bjart með köflum og úrkomulítið á Norðausturlandi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Á miðvikudag:
Fremur hæg breytileg átt og víða skúrir, einkum síðdegis, en lengst af þurrt fyrir austan. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig.
Á fimmtudag:
Norðlæg átt og dálitlar skúrir á víð og dreif. Hiti breytist lítið. Fer að rigna á Norðausturlandi um kvöldið.
Á föstudag:
Útlit fyrir norðlæga átt með dálítilli vætu, en bjart að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast syðst.