Miklar umferðartafir eru frá Hveragerði til Reykjavíkur. Á Hellisheiði lenti bíll utan vegar á leið til höfuðborgarsvæðisins með hjólhýsis í eftirdragi sem tók á sig vind.
Enginn er slasaður að sögn lögreglu en unnið er að því að koma hjólhýsinu aftur upp á veginn.
Umferð er farin að ganga fram hjá bílunum.
Bílaröðin náði austur fyrir afleggjarann að Þrengslum, að því er vegfarandi tjáði fréttastofu.
Sömu sögu er að segja af Holtavörðuheiði þar sem bíll með hjólhýsi í eftirdragi hefur stöðvað umferð. Bíllinn lenti utan vegar og hjólhýsið, sem hefur fokið á hliðina, þverar veginn.
Rétt er að minna á að Veðurstofa Íslands gaf út gula viðvörun við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og ströndum, Norðurlandi vestra og á miðhálendinu vegna hvassra vindstrengja.
Þær tóku gildi í morgun og vara fram yfir miðnætti.
Fréttin hefur verið uppfærð.