Barnafjölskyldur, sem á að vísa úr landi, verða vistaðar í sérstöku húsnæði og þurfa ekki að deila rými með öðrum samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarp um brottfararstöð. Formaður nefndarinnar gerir ráð fyrir að frumvarpið fari í lokaatkvæðagreiðslu í næstu viku.
Leggja til þrjár breytingar á frumvarpi um brottfararstöð
Allsherjar- og menntamálanefnd skilaði frá sér nefndaráliti í gær þar sem þrjár breytingar á frumvarpi um brottfarastöð eru lagðar til. Tillögurnar taka mið af gagnrýni á vistun barnafjölskyldna í brottfararstöðvum.
Víðir Reynisson, formaður nefndarinnar, segir breytingarnar skerpa á mikilvægi þess að barnafjölskyldur séu ekki vistaðar á brottfararstöðinni sjálfri.
„Heldur á öðrum stað þar sem hver fjölskylda getur verið algjörlega ein. Hún hefur þá sitt einkalíf þar og íbúð með öllu sem því fylgir og útiaðstöðu líka. Og að þetta sé ófrávíkjanlegt.“
Breið sátt um breytingarnar
Hann segir breiða sátt um breytingarnar innan nefndarinnar. Þær séu meðal annars samsettar úr breytingartillögum frá bæði Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum.
„Við erum búin að eyða mjög miklum tíma í þetta og fara yfir og velta fyrir okkur öllum hugsanlegum leiðum sem hafa verið nefndar í þessu samhengi,“ segir Víðir.
„Og það er mjög mikilvægt í þessu samhengi að átta sig á því að brottfarastöð er lokaúrræði þegar öll önnur úrræði hafa verið reynd. Eins og tilkynningaskylda, dvöl á tilteknum stað og fleira og fleira. Og hugsanlega í framtíðinni rafrænt eftirlit. Ef ekkert af þessu hefur gengið þá kemur brottfarastöð sem lokaúrræði.“
Samtal hafið við sveitarfélögin
Í frumvarpinu kemur fram að brottfararstöðin eigi að vera á Suðurnesjum og undir stjórn lögreglustjórans þar. Víðir segir samtal þegar hafið við sveitarfélögin um hugsanlegar staðsetningar.
„En varðandi fjölskyldurnar, þá er hugsanlegt að það verði einhvers staðar annars staðar, eftir því hvar við finnum góða aðstöðu fyrir slíkt.“
Víðir segir óljóst hvenær tillagan verði tekin til atkvæðagreiðslu. Hann bindi þó vonir við næstu viku.
Gerirðu ráð fyrir að frumvarpið verði samþykkt?
„Já, ég geri ráð fyrir því.“