Hátt í fjögur þúsund hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem skorað er á Alþingi og dómsmálaráðherra að beita sér fyrir óháðri úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundinna ofbeldismála, frá rannsókn til dómsmeðferðar.
Ábyrgðarmaður listans segir fólk þurfa að standa saman og mikinn kraft í samstöðunni.
Gat ekki horft á þetta gerast og ekki gert neitt
Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 3843 skrifað undir og er undirskriftarlistinn opinn til 30. nóvember.
Undirskriftarlistinn kemur í kjölfar þess að Landsréttur sýknaði karlmann af ákæru um nauðgun. Hann hafði verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Konan í málinu hlaut alvarlega áverka.
Landsréttur klofnaði í dómi sínum. Tveir dómarar sýknuðu manninn en sá þriðji skilaði sératkvæði, taldi rétt að sakfella hann og staðfesta dóm héraðsdóms.
Samkvæmt ákæru hlaut konan meðal annars rifbeinsbrot, heyrnartap og tognun í hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Meirihluti dómara Landsréttar taldi ósannað að maðurinn hefði brotið á konunni þar sem hún hefði samþykkt að það mætti beita hana hörku í kynlífi. Hún hefði notað öryggisorð einu sinni og maðurinn brugðist við því.
Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir er á bak við undirskriftarlistan. Hún var gestur í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.
„Þetta var eiginlega bara það sem fyllti mælinn. Maður er sjálfur sem þolandi að hafa fylgst með umræðunni undanfarna mánuði og ár, maður getur ekki horft á þetta lengur gerast og ekki gert neitt.“
Aðalheiður Ósk er stofnandi Facebook-hópsins Áfram stelpur og samtaka með sama nafn. Þau styðja við þolendur ofbeldis með mörgum leiðum, vekja athygli á brotalömum í kerfinu samhliða því að vinna að umbótum og auknu öryggi þolenda.
„Er ekki kominn tími til að gera eitthvað?“
Hún segir marga hafa haft samband við sig eftir að dómurinn birtist og spurt hvort ekki væri kominn tími til aðgerða.
„Er ekki kominn tími til að gera eitthvað? Er kominn tími á mótmæli? Er kominn tími á undirskriftarsöfnun? Mér finnst bara flott að byrja á undirskriftarsöfnun og sjá hvert það leiðir okkur.“
Með dómnum sé verið að senda stórhættuleg skilaboð út í samfélagið og hún bendir á að kvenkyns dómari við Landsrétt hafi skrifað ítarlegt minnisblað um dóm héraðsdóms í málinu.
„Það er þarna kona sem er dómari og hún vill viðhalda dómnum og staðfesta dóminn sem hafði verið felldur. Hún skrifar þarna mjög ítarlegt minnisblað um það. Svo koma tveir karldómarar og þeir vilja sýkna hann. Þeir hafa líka upplýsingar um það að þessi einstaklingur er með fyrri dóma á bakinu þannig að það er einhvern veginn alveg sama í hvaða horn maður horfir það er ekkert þarna sem gengur upp.“
Aðalheiður Ósk vonast til þess að hlustað verði á þá sem skrifuðu undir undirskriftarlistan.
„Það er augljóslega mikil reiði í samfélaginu, fólk er ekki sátt og það er jákvætt. Ég vil skila þessum lista inn til dómsmálaráðherra, funda með henni og fara yfir stöðuna og ég treysti á það að hún taki við listanum og geri eitthvað við hann og hlusti á fólkið í landinu.“
Hún segir mikilvægt að almenningur geti treyst dómstólum.
„Það er ekki nóg að segja þolendum að kæra. Það krefst gríðarlegs hugrekkis að stíga fram og kæra. Að treysta einhverjum fyrir því sem maður er búinn að fara í gegnum, að það sé hlustað, að það sé trúað, að það sé farið vel með frásögnina okkar. Þannig að það að treysta þeim sem rannsaka málin, þeim sem ákæra í málunum og þeim sem dæma í málunum, það er það sem skiptir máli og það er það sem við viljum að verði skoðað betur.“
Mikill kraftur í samstöðunni
Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til Hæstaréttar en Aðalheiður Ósk segir listan ekki snúast um það heldur að kerfið í heild verði skoðað.
„Við treystum öll á að það verði áfrýjað. Þau hafa þarna tækifæri til að setja fordæmi og við treystum á að það nýti það.“
Aðalheiður Ósk segir dómarana í mótsögn við sjálfa sig en að jákvætt sé að í dómnum hafi verið horft til áfallaviðbragða þolandans. Það hafi færst í aukana undanfarin ár. Dómsvaldið og fleiri í stjórnsýslunni hafi verið frætt um hver þau viðbrögð geti verið, til dæmis að frjósa.
„Það var bara mikið sjokk að sjá allar mótsagnirnar í niðurstöðu dómsins og margt fleira sem þarf að skoða. Að það sé ekki horft til læknisfræðilegra gagna, þau eru samt þarna en þau ásamt orðum þolenda saman vega ekki nóg til að staðfesta dóm. Sem er algjörlega galið.“
Hún er ánægð með hvernig undirskriftarsöfnunin fer af stað.
„Fólk þarf að standa saman og það er rosalegur kraftur í samstöðunni.“
Hlusta má á viðtalið við Aðalheiði Ósk í heild í spilaranum hér að neðan.