Talsvert er um að reyndum iðnaðarmönnum sé sagt upp og ófaglærðir ráðnir í staðinn. Formaður Byggiðnar segir þetta hafa mikil áhrif á gæði bygginga.
Um síðustu mánaðamót voru hátt í tólf hundruð atvinnulausir í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Allir nema einn eru karlar og flestir á höfuðborgarsvæðinu eða 924, 888 eru Íslendingar og 279 útlendingar samkvæmt sömu tölum.
Þriðja mesta atvinnuleysið er í þessari grein
Þetta er sú atvinnugrein þar sem atvinnuleysi mælist þriðja mest og Jón Bjarni Jónsson formaður Byggiðnar og varaformaður Samiðnar, landssambands iðnfélaga, segir líklegt að atvinnuleysið sé jafnvel enn meira.
Uppsagnir hafi helst verið hjá fyrirtækjum sem eru í nýsmíði. „Við verðum minna vör við þetta hjá fyrirtækjum sem eru í viðhaldsverkefnum,“ segir Jón Bjarni.
Út með menntaða - inn með ómenntaða
Hverjum er sagt upp og á hvaða forsendum? „Það sem við verðum mest vör við eru uppsagnir á okkar félagsmönnum sem eru menntaðir. Þróunin virðist vera þannig að það er verið að segja upp mönnum með lögbundin réttindi og það er frekar verið að fara út í að ráða undirverktaka á byggingarstaðinn.“
Þannig að menntuðum iðnaðarmönnum er sagt upp og í þeirra stað ráðnir menn með enga menntun? „Það er það sem við erum að sjá í tölum hjá okkur.“
Segir áhrif á gæði bygginga
Fyrir skömmu fóru fulltrúar ASÍ í samstarfi við Samiðn á nokkra byggingastaði og könnuðu hlutfall faglærðra á staðnum. „Á byggingarstöðum sem við fórum á í júní voru 24% með iðnréttindi,“ segir Jón Bjarni. „4% eru skráðir nemar og 72% skráðir án iðnréttinda. Það er alveg klárt, þessi samsetning, hvernig byggingavinnustaðir eru mannaðir, hefur áhrif á galla í byggingum.“