Oddvitar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Múlaþingi undirrituðu í hádeginu í dag nýjan meirihlutasamning og endurnýjuðu þar með meirihlutasamstarf flokkanna til næstu fjögurra ára.
Flokkarnir tveir hafa myndað meirihluta í sveitarfélaginu frá stofnun þess árið 2020. Meirihlutinn bætti við sig manni í nýafstöðnum kosningum er Sjálfstæðisflokkurinn bætti við sig manni á kostnað Austurlistans.
Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti Framsóknar, verður áfram forseti sveitarstjórnar og Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður áfram formaður byggðarráðs. Mun meirihlutinn leitast eftir því að Dagmar Ýr Stefánsdóttir verði áfram sveitarstjóri.
Stofnun hafnarráðs fyrirhuguð
Í tilkynningu sem send var út af þessu tilefni er sagt að meirihlutinn muni leggja áherslu á góða nærþjónustu fyrir alla íbúa og verði þar meðal annars unnið að því að tryggja hækkun frístundastyrks, áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja, uppbyggingu göngu- og hjólastíga og eflingu þjónustu við eldra fólk.
Þá ætlar meirihlutinn að tryggja áframhaldandi leikskólapláss frá 12 mánaða aldri og vinna að betri samþættingu skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs.
„Öflugir innviðir eru lykillinn að því að fólk og fyrirtæki velji að búa og starfa í sveitarfélaginu og því er mikilvægt að halda áfram markvissri uppbyggingu skóla-, íþrótta- og tómstundaaðstöðu um allt sveitarfélagið. Með góðri samvinnu, trausti og metnaði getum við skapað enn betri aðstæður fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og samfélagið allt til framtíðar,“ er haft eftir Jónínu í tilkynningunni.
„Við ætlum okkur að auka samkeppnishæfni Múlaþings á öllum sviðum. Við viljum skapa
góð skilyrði fyrir atvinnulíf, fjárfestingar og ný tækifæri. Stofnun hafnarráðs verður einnig
mikilvægt skref til að efla hafnir sveitarfélagsins og nýta betur þau fjölmörgu tækifæri til
verðmætasköpunar sem þar liggja,“ er haft eftir Berglindi í tilkynningunni.