Heimildir fréttastofu herma að málefnasamningur um nýtt meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og L-listans verði kynntur á föstudaginn. Flokkarnir hófu viðræður strax á sunnudagsmorgun um samstarf og hefur verið góður gangur í viðræðunum.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkur Akureyrar og þar á eftir L-listinn. Framsóknarflokkurinn er fjórði stærsti flokkurinn en allir listarnir fengu tvo fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum liðna helgi. Samfylkingin fékk einnig tvo fulltrúa kjörna en fengu ekki sæti við borðið í meirihlutaviðræðum.
Miðflokkurinn starfaði í meirihluta með L-lista og Sjálfstæðisflokki á síðasta kjörtímabili en sökum þess að L-listinn tapaði einum fulltrúa í kosningunum féll sá meirihluti.
Ásthildur hætt sem bæjarstjóri
Á Akureyri hefur bæjarstjóri verið ópólitískur og ráðinn frá því 2010 þegar að L-listinn fékk hreinan meirihluta í sveitarstjórnarkosningum.
Ásthildur Sturludóttir hefur verið bæjarstjóri frá árinu 2018, en tilkynnti á Facebook rétt fyrir kl 15 að hún léti af störfum „eftir átta annasöm en afar ánægjuleg ár í embætti“.
Hún fór yfir hin ýmsu verkefni sem urðu að veruleika í hennar tíð og þakkaði samstarfsfólki.
„Í samfélaginu hér á Akureyri búa gríðarleg tækifæri og framtíðin er sannarlega björt ef bæjarstjórn, bæjarbúar og atvinnulífið sýna samstöðu og hafa til þess metnað að halda áfram uppbyggingu liðinna ára með það fyrir augum að gera gott betra og efla svæðisborgina okkar. Ég óska nýrri bæjarstjórn velfarnaðar í mikilvægum störfum og nýjum bæjarstjóra óska ég alls hins besta í flóknum verkefnum.“
Hún klykkti út með að hún myndi skila ráðhúsinu af sér nýmáluðu.
Hvað sögðu framboðin?
Framboð hafa oftar en ekki verið mjög afdráttarlaus með skoðanir sínar um það fyrirkomulag og sammála um að það ríki sátt með ópólitískan bæjarstjóra.
Í oddvitaumræðum RÚV fyrir kosningar voru svör oddvitana ekki eins afdráttarlaus og áður um málefni bæjarstjóra þegar þau voru innt eftir svörum hver ætti að vera bæjarstjóri:
„L-listinn hefur yfirleitt haft þá stefnu að auglýsa eftir bæjarstjóra sem hefur gengið vel en ég hef líka sagt að ef við færum í meirihlutaviðræður þar sem væri skorað á mig myndi ég ekki skorast undan því,“ sagði Óðinn Svan Óðinsson, oddviti L-listans.
„Mér finnst líklegt að við myndum vilja auglýsa og svo bara velja einhverja manneskju sem er til í að fara í þær breytingar sem við myndum vilja fara í,“ sagði Sunna Hlín Jóhannesdóttir, oddviti Framsóknarflokksins
„Þetta veltur bara á niðurstöðu kosninga og hvernig meirihlutaviðræður þróast eftir að við vitum hvað kemur upp úr kössunum“, sagði Berglind Ósk Guðmundsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Hvernig verða helstu stólar mannaðir?
Samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórnum snúast að miklu leyti um tvö atriði: Málefnin sem á að vinna að á kjörtímabilinu og hvernig verður skipað í nefndir og ráð á vegum sveitarfélagsins, meðal annars hver er bæjarstjóri eða formaður bæjarráðs.
Undanfarið kjörtímabil fór L-listinn með embætti forseta bæjarstjórnar á meðan Sjálfstæðisflokkurinn fór með embætti formanns bæjarráðs. Miðflokkurinn sinnti formennsku í stjórn Norðurorku.
Fréttin var uppfærð eftir að Ásthildur Sturludóttir tilkynnti að hún væri hætt sem bæjarstjóri.