Innviðaráðherra hefur breytt reglugerð um ökuskírteini í tvígang undanfarna mánuði án þess þó að verða við óskum Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins um að reglugerðinni verði breytt til samræmis við heimild sem kemur fram í Evróputilskipun sem hefur verið innleidd á Íslandi.
Þess var óskað að reglugerð um ökuskírteini yrði breytt á þann veg að ökumönnum, með hin hefðbundnu B-réttindi, yrði heimilað að aka þyngri bílum en gildandi reglugerð kveður á um, enda sé bifreiðin að hluta til eða í heild knúin vistvænum orkugjöfum, eins og rafmagni t.d.
Ástæða þessa er sú að framleiðendur ökutækja setja á þessu ári á markað rúmgóða fjölskyldubíla sem stundum eru kallaðir strumpastrætóar og sendibíla sem ganga alfarið fyrir rafmagni, eru fjórhjóladrifnir og með það stóra rafhlöðu að drægni hamlar ekki notkun.
Að óbreyttu þurfa ökumenn slíkra bifreiða að vera með meirapróf þar sem almennu ökuréttindin, B-réttindin, takmarkast við 3.500 kílóa heildarþyngd ökutækja. Hinir nýju fjölskyldu- og sendibílar eru hins vegar þyngri en 3.500 kg en léttari en 4.250 kg, en samkvæmt umræddri Evróputilskipun er heimilt að miða við þá þyngd að hámarki.
Fyrirspurn á Alþingi
Fram er komin á Alþingi fyrirspurn Ólafs Adolfssonar alþingismanns Sjálfstæðisflokksins sem beint er til innviðaráðherra, þar sem hann spyr hvort til standi að innleiða fyrrgreinda heimild. Verði svarið jákvætt er spurt hvenær það gerist og ef svarið er neikvætt er óskað rökstuðnings fyrir því.
„Stjórnvöld hafa lagt áherslu á orkuskipti í samgöngum, í stjórnarsáttmála, við vörugjaldabreytingar um síðustu áramót og í tengslum við tímabundna lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti o.fl.,“ segir Benedikt S. Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Bílgreinasambandsins, í samtali við Morgunblaðið.
Segir leiða til sóunar
„Að óbreyttu þarf það fjölskyldufólk sem ætlar að kaupa þessa nýju bíla að vera með meirapróf. Þá þurfa atvinnurekendur að ráða starfsfólk með meirapróf til að aka nýju sendibílunum. Það leiðir til sóunar þar sem unnt er að fara þá leið að nýta heimildina í Evróputilskipuninni og komast hjá þessu. Þar sem þetta er krafan má gera ráð fyrir að kaupendur velji frekar að kaupa bensín- eða dísilbíla, þvert á áherslur ríkisstjórnarinnar,“ segir Benedikt og þykir það skjóta skökku við, ætli stjórnvöld ekki að innleiða áðurnefnda breytingu á reglum um ökuskírteini.
Undrast seinagang
„Við höfum ítrekað spurt hvers vegna innviðaráðuneytið hefur ekki nýtt heimildina og breytt reglugerð um ökuskírteini. Það hefur verið gert í Noregi svo dæmi sé tekið. Samkvæmt okkar upplýsingum gáfu undirstofnanir ráðuneytisins grænt ljós á það í nóvember 2025,“ segir hann og undrast seinaganginn í málinu sem og að tækifærið hafi ekki verið nýtt þegar breytingar hafa verið gerðar á reglugerðinni, sem gerst hefur tvisvar að undanförnu eins og að framan greinir.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.