Hæfi Einars Huga Bjarnasonar, formanns Fjölmiðlanefndar, er ekki til umfjöllunar hjá menningar,- nýsköpunar- og háskólamálaráðuneyti. Þetta segir í svari Loga Más Einarssonar ráðherra við fyrirspurn fréttastofu.
Greint var frá því á miðvikudag að Einar Hugi, sem er lögmaður, reki skaðabótamál fyrir Gavia Invest gegn Heiðari Guðjónssyni og eignarhaldsfélaginu Úrsusi vegna kaupa þeirra á hlutafé í Sýn fyrir 2,2 milljarða króna. Gavia Invest er stærsti einstaki hluthafinn í Sýn með 18,23% hlut.
Loga Más Einarssonar, menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra bendir á að fjölmiðlanefnd sé sjálfstæð stjórnsýslunefnd og að ákvarðanir um hæfi nefndarmanna fari eftir ákvæðum stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
„Umfjöllun um hæfi einstakra nefndarmanna kemur þar af leiðandi ekki inn á borð mitt sem ráðherra. Þetta gefur þó tilefni til að árétta þá afstöðu mína að nefndarmenn gæti vel að hæfi sínu. Það er mikilvægt að eins mikið traust ríki um störf Fjölmiðlanefndar og mögulegt er,“ segir Logi.
Fjölmiðlanefnd þarf meðal annars að taka ákvarðanir í málum sem varða Sýn og aðra fjölmiðla. Henni er ætlað að efla fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum, stuðla að vernd barna, standa vörð um tjáningarfrelsi og rétt almennings til upplýsinga.
Í starfsreglum Fjölmiðlanefndar segir að þegar nefndarmaður sé vanhæfur við umfjöllun máls skuli varamaður taka sæti hans. Þá taki viðkomandi nefndarmaður ekki þátt í undirbúningi, meðferð eða ákvörðun málsins.
„Nefndarmenn skulu í hvívetna gæta að hæfi sínu við umfjöllun einstakra mála. Telji nefndarmaður að hann sé vanhæfur til þess að taka þátt í umfjöllun máls skal hann víkja sæti áður en efni málsins er kynnt.“