Með miklu stærra bílastæði en þú
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Með miklu stærra bílastæði en þú

Með miklu stærra bílastæði en þú

Með miklu stærra bílastæði en þú

Hver myndi ekki vilja hitta miðaldra frænda í fermingarveislu sem montar sig af stærð bílastæðisins síns? Þessi frændi er vaknaður í líki Herra Hnetusmjörs 2026. 

Fátt skilgreinir stöðu íslenskrar poppmenningar síðustu ár eins vel og Herra Hnetusmjör, Árni Páll Árnason, sem kallar sig líka Kópboi. Ef marka má þemað í nýjustu plötu Árna Páls er hún stöðnuð. Kópurinn selur ennþá en þroskaferlið virðist bara liggja í því hvernig eignastaðan sem hann rappar um breytist í miðaldra.

Þetta fylgdi þroskaferli þjóðarinnar. Eftir banka- og krónuhrunið 2008 færðist gildismatið frá efnishyggju og lífsgæðakapphlaupi yfir í meiri áherslu á sannleika, jafnræði og sjálfbært líf. Nokkrum árum síðar var risin ný efnishyggjubylgja blönduð af róttækum rembingi, þar sem ungir piltar, oft auðbörn og jafnvel kvótaerfingjar, röppuðu sveiflandi seðlabúntum um hvað þeir ættu mikið meira en aðrir.

Fyrirmyndin var sótt til ungra Bandríkjamanna, oft úr jaðarhópum, sem röppuðu um að hafa barist úr fátækt og ofbeldi. Líkt og flestir aðrir íslenskir rapparar kemur Herra Hnetusmjör hins vegar úr annarri átt. Hann er þrítugur ráðherrasonur úr úthverfi Kópavogs, sem syngur nú meira og meira um tekjustrauma sína og eiginfjárstöðu - og stærð lóðarinnar og bílaplansins. 

Lóðamál

Á nýju plötunni sinni Tónlist til að sigra við syngur Herra Hnetusmjör að hann þurfi ekki þurfa að hafa áhyggjur af nágrönnum sínum, eins og segir í sífellu í viðlaginu við lagið Nágrannar: „1.700 fermetra lóð, hvaða nágranna?“

Það þykir stór lóð, enda segir Árni Páll frá því í öðru lagi að hann komi úr úthverfi Kópavogs: „Enda er það sem ég ólst upp í tveir núll þrír kóp“.

Þessu fylgir hann eftir í öðru lagi, sem heitir 24 tommur og er tilvísun í dekkjastærð bifreiðarinnar.

„Bíllinn minn er stór, þú heyrir þegar við komum. Getur fundið mig í Kóp á 24 tommum.“

Í þriðja laginu, „Ég myndi líka hata mig“, smellur þetta saman. Þar lýsir hann því hvernig hann er betri og vinsælli en aðrir og segir: „Innkeyrslan mín er stærri en íbúðin þín.“ 

Þegar horft er til „borða bara steik, borða bara sushi“ er allt í einu hvert lagið á fætur öðru er eins og hróðug útgáfa af kosningaloforðum Flokks fólksins: Fæði, klæði, húsnæði, bílastæði.

Að sigra lífsgæðakapphlaupið

Mörg af vinsælustu lögum Herra Hnetusmjörs í fortíðinni hafa fjallað um tekjuöflunina hans og eignastöðuna í einhvers konar viðskiptafræðivæðingu íslenskrar poppmenningar.

Það snýst um að sýna að hann sé betri en aðrir, eins og öfugt Jantelov.

Á nýjustu plötunni sinni kemst Árni Páll í sjálfs-klímax í síðasta laginu, Sólsetri.

„Ég gæti kallað þetta gott. Ég er kominn lengra en nokkur maður hefur horft,“ syngur hann í rómantískum tón. „Ungur að aldri. Nú í fyrsta sinn sé ég engan hærri tind þegar ég er kominn upp á topp.“

Hann útskýrði í viðtali við RÚV í vikunni að hann liti á nýju plötuna sem sigurhring eftir velgengni poppsveitarinnar Iceguys.

En um leið er hún framlenging af fyrri áherslu á að vera með „hálfa milljón í vasanum“ (2019), „úttroðna vasa“ (2023), með seðlabúnt og kaupa listaverk, eins og í laginu Elli Egils (2024) sem varð eitt það vinsælasta á Íslandi það árið. „Ég set búnt á skenkinn, Ella Egils á vegginn.“

Elli Egils er listamaður búsettur í LA sem er meðal annars orðinn þekktur fyrir að mála fjallið Herðubreið á hálendinu fyrir norðan, sem hann sagðist í viðtali þó aldrei hafa séð sjálfur. Verk hans eru orðin algeng sjón í innlitsþáttum og ákveðin táknmynd nútímans fyrir velgengni efri stéttar Íslendinga.

Í sama lagi söng Árni Páll að hann væri kominn með „Range Rover í hlaðið“ og „Versace slopp inná baði“, áður en hann færði sig nú alla leið yfir í að syngja um lóðina, bílaplanið og dekkjastærðina.

Til að kóróna tilfærslu sína yfir í miðlífið syngur Árni Páll á nýjustu plötunni: „Það eru 50% líkur á að þú finnir mig á Spáni.“ Þó á líklega best við um ellilífeyrisþega að dvelja hálft árið á Spáni.

Reikningagerðin

Á öðrum stað fjallar Árni Páll ekki einungis um efnahagsreikning sinn heldur reikningagerð. „Ég geri enga kröfu nema krafa mín sé greidd,“ syngur hann.

„Gjaldþrot þegar þú greiddir, það sem ég greiði skattinum,“ bætir hann við. 

Í laginu Labbilabb árið 2017, sem fjallaði um tekjur hans af því að syngja á viðburðum, sömu viðburðum og hann söng lagið á, var boðskapurinn hins vegar að hann borgaði ekki skatta. „Ég er með peninginn í umslagi (allt svart)“.

Kópbois ehf., félag í eigu Árna Páls Árnasonar, Herra Hnetusmjörs, hagnaðist um 66 milljónir króna á síðasta ári, einmitt á því að rappa um tekjuvöxtinn sinn. „Rapppeningar,“ syngur hann.

Núna syngur hann um að skrifa ævisögu.

„Ég rita ævisögu í notes, þarf ekkert leikrit,“ segir hann, en ævisaga hans var skrifuð af öðrum og kom út árið 2020, þegar hann var 24 ára. Í lok hennar sagðist hann ætla að einbeita sér að því að safna fasteignum. Um það virðist hann rappa í dag.

Spurningin er hvort Herra Hnetusmjör sé ennþá spegill á tíðarandann okkar, eða hvort leiðir séu að skilja.

Þessi boðskapur, sérstaklega í taktfastri tónlist sem er án efa sú ein best útfærða á Íslandi, getur vel valdeflt fólk, hvatt það áfram í lífsgæðakapphlaupinu, kauphlaupum eins og öðrum lífshlaupum sem virðast snúast um að koma á undan hinum í mark.

En yfirborðskenndur miðaldra metingur um að innkeyrslan mín sé stærri en innkeyrslan þín getur líka framkallað hrottafenginn aulahroll. Eins og sólin sé risin eftir partý sem var orðið skrítið, eins og við monthanagal, nógu afgerandi skil til þess að eitthvað allt annað og öðruvísi gildismat sé framundan.

#bílastæði #miklu #stærra


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26526/med-staerra-bilastaedi/

📰 Aðrar fréttir

Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 1
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 2
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 1
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 1
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 2
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 1
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 1
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 2
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 1
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 1
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 2
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
📅 25.10.2026 👁️ 1
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
The International Weightlifting Federation becomes the first Olympic federation to choose Russia to host a world championships since its invasion of U...
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
Laxveiði jókst um 35% milli ára
📅 25.10.2026 👁️ 2
Laxveiði jókst um 35% milli ára
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
📅 25.10.2026 👁️ 2
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
Leanne Gregory, from Stapleford in Nottinghamshire, died trying to save her sons swept out to sea.
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 2
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 3
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 3
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 3
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 3
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ljóst að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 3
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Málverkið af danska kónginum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Málverkið af danska kónginum
Málverkið af danska kónginum Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrst...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 3
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 3
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 3
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...