MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðalögum

MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðalögum

MAST hótaði að stöðva starfsemi Sólhesta vegna ítrekaðara brota á dýravelferðalögum

Matvælastofnun hótaði að stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta fyrr á árinu eftir að aðstandendur fyrirtækisins gáfu lítið fyrir fjölda alvarlegra athugasemda við heilbrigði margra hesta. Sólhestar eru með starfsemi í Reykjavík og í Reykjadal.

Í erindi Matvælastofnunar til Sólhesta kemur fram að frávikin hafi verið það alvarleg að þau hafi kallað á tafarlausar úrbætur. Fallið var frá boðaðri stöðvun á eftir að úrbætur voru gerðar. Eftirlit með hestaleigunni verður tíðara í framhaldinu.

Brot Sólhesta, eða frávik, sem eru tíunduð í tíu skoðunarskýrslum frá 14. janúar til 8. apríl og fleiri skjölum, sneru einkum að slæmu holdarfari hesta sem margir þóttu alltof grannir. Þá þótti sérstaklega ámælisvert þegar hross voru notuð í útreiðartúr þrátt fyrir að opinber eftirlitsaðili hefði bannað notkun á þeim fyrr sama dag.

Alvarleg frávik í sex af tíu skýrslum

Eftirlitsmenn MAST leggja mat á skoðunaratriði í eftirlitshandbók og skrá þau ýmist í lagi, sem frávik eða sem alvarlegt frávik. Frestir til úrbóta og beiting þvingunaraðgerða og/eða refsing ákvarðast af alvarleika brots og hvort um endurtekið brot sé að ræða.

Í sex af tíu skoðunarskýrslum voru meðal annars skráð alvarleg frávik eins og alvarleg vanfóðrun, að hross væru vöðvarýr, að eigandi eða umráðamaður hestaleigunnar gerði sér ekki grein fyrir vanfóðrun eða óheilbrigði hrossa, að hófar væru aflagaðir og brotnir og að hross næðu ekki reiðhestsholdum, það er að þau væru ekki í nægilega góðu ásigkomulagi til að þau væru setin.

Stöðvun á starfsemi boðuð

Þann 25. mars sendi MAST Sólhestum ehf. boðun um stöðvun á starfsemi hestaleigunnar vegna alvarlegra brota á dýravelferð á grundvelli laga um velferð dýra. Krafist var tafarlausra úrbóta á öllum alvarlegum frávikum sem tilgreind voru í skoðunarskýrslu sem er dagsett 19. mars.

Hætta yrði að gefa skemmt hey, gefa þyrfti hrossum nóg og bæta við kvöldgjöf. Taka þyrfti inn hross sem væru undir holdastigi 2, hætta að ofgera hestum og undantekningarlaust þyrfti að hvíla hesta sem ekki næðu holdastigi 3, væru of gamlir eða vöðvarýrir. Að lokum þyrfti að sýna fram á með óyggjandi hætti að aðstandendur Sólhesta byggju yfir þeirri hæfni og getu sem er nauðsynleg til að halda hross.

„Fram kemur í 35. gr. dýravelferðarlaga að MAST sé heimilt að takmarka eða stöðva starfsemi þegar um alvarleg tilvik eða ítrekuð brot sé að ræða eða ef aðilar sinni ekki fyrirmælum innan tilgreinds frests. Það tilkynnist hér með að MAST hyggst stöðva starfsemi hestaleigunnar Sólhesta ehf vegna alvarlegra brota á dýravelferð,“ segir í bréfi MAST til Sólhesta.

Öll hrossin metin verulega vöðvarýr

Tvær skoðunarskýrslur eru dagsettar 19. mars, ein vegna eftirfylgniskoðunar og önnur vegna ábendingar eða kvörtunar. Sex alvarleg frávik voru skráð við eftirfylgniskoðunina að auki við 14 frávik.

Fjögur hross voru sögð áberandi grönn, hrossin Þrá frá Akurgerði (holdastig 2,0), Andvari frá Súluholti (holdastig 1,5), Steinríkur frá Borgargerði (holdastig 2,0) og grár óörmerktur hestur í holdastigi 2,0. Merking hrossa er einnig skráð sem frávik. Sjö af átján hrossum voru sögð fóðrast illa og þarfnast aðhalds.

Þá voru öll hrossin metin verulega vöðvarýr að baki.

„Mikil slysahætta er af bárujárnsplötum og gaddavír í hólfinu. Ekki er fullnægjandi skjól og beitin uppnöguð. Ljóst er að aðbúnaður og umhirða hrossanna er alls ekki í lagi og ljóst er að eigendur/umráðamenn gera sér ekki grein fyrir alvarlegu ástandi þeirra. Það að grennstu hrossin séu einnig á járnum segir okkur að þau séu einnig í notkun þrátt fyrir bann Matvælastofnunar.“

Síðari skoðunarskýrslan frá 19. mars er vegna ábendingar eða kvörtunar. Í henni er gerð athugasemd við að hvorki hafi verið bætt úr holdafari ákveðinna hrossa né þau tekin úr notkun.

Þegar stöðvun starfsemi Sólhesta var boðuð var vísað til þeirrar skýrslu. Í henni segir að augljóst sé að ekki sé brugðist við vanfóðrun eða óheilbrigði í hrossum Sólhesta. Hrossin séu ekki tekin úr notkun né fái sérstaka aðhlynningu vegna vanfóðrunar eða óheilbrigðis.

„Þrátt fyrir að sögn bústjóra [sic] að það sé fóðrað 4 sinnum á dag þá eru 7 af 18 hrossum sem ná ekki reiðhestsholdum og öll hin hrossin ná tæplega reiðhestsholdum. Það bendir til verulegra vankanta í búskaparháttum eða óheilbrigði í hrossunum sem eigandi/umráðamaður annaðhvort bregst ekki við og/eða að eigandi/umráðamaður býr ekki yfir nægilegri getu, hæfni né þekkingu til að halda hross,“ segir í henni.

„Við eftirlit um morgunin 19.03.2026 voru gefin fyrirmæli um að fjögur hross ættu ekki að vera í notkun. Þegar eftirlitsmenn komu aftur að hádegi sama dag játaði bústjóri að hrossin hefðu verið notuð í millitíðinni. Matvælastofnun lítur það mjög alvarlegum augum þegar ekki er farið eftir fyrirmælum.“

Sólhestar andmæla stöðvun

Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður sendi MAST andmæli við boðaðri stöðvun á starfsemi Sólhesta fyrir hönd fyrirtækisins þann 8. apríl. Í andmælabréfinu er fjölda athugasemda í skoðunarskýrslum Matvælastofnunar mótmælt. Bréfið er átta blaðsíður.

Í því segir Sævar Þór umbjóðanda sinn telja skoðunarskýrslur að mörgu leyti ófullnægjandi og óáreiðanlegar. Þá finnist umbjóðandanum Matvælastofnun ekki hafa verið nógu leiðbeinandi vegna úrræða. Sólhestar hafi gripið til umfangsmikilla úrbóta og ráðstafana til að mæta kröfum stofnunarinnar auk þess að afla utanaðkomandi sérfræðiálita.

Í því segir einnig að hross hafi verið tekin úr notkun þegar farið hafi verið fram á það.

„Þá hefur verið ráðinn sérfræðingur, Gústaf Loftsson, til að tryggja að starfsemin uppfylli allar kröfur dýravelferðarlaga [...] Þessar skjótu og afgerandi ráðstafanir sýna fram á ríkan samstarfsvilja og ábyrgðartilfinningu umbjóðanda míns og ættu að leiða til þess að vægari úrræði verði fyrir valinu,“ segir í andmælabréfinu.

„Það er sérstaklega ámælisvert í þessu samhengi að boðuð stöðvun byggir á skoðunarskýrslu nr. 2951 frá 19. mars sl., þar sem úrbótafrestur fyrir skráð frávik var tiltekinn „Næsta skoðun“. Næsta skoðun fór fram hinn 24. mars, samanber skýrslu nr. 3016.

Í þeirri skoðun var hins vegar einungis litið til þeirra hrossa sem voru nýkomin á hús en vísvitandi látið hjá líða að kanna þær fjölmörgu úrbætur sem þegar hafði verið ráðist í vegna fyrri athugasemda. Að því gefnu að úrbótafrestur hafi verið bundinn við næstu skoðun, bar MAST að kanna stöðu úrbóta í þeirri skoðun.

Að senda í kjölfarið út boðun um stöðvun starfsemi daginn eftir, hinn 25. mars, án þess að hafa gefið sér tíma til að meta þær úrbætur sem gripið hafði verið til, er augljóst brot á rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. Það er óforsvaranlegt að grípa til jafn íþyngjandi úrræðis og rekstrarstöðvunar án þess að kanna fyrst hvort tilefni þess sé enn fyrir hendi,“ segir í bréfinu.

Þá hafnaði fyrirtækið því að brotin hafi verið alvarleg og ítrekuð.

Fallið frá stöðvun og andmælum svarað

Þann 10. apríl sendi lögfræðingur MAST Sævari Þór bréf og greindi frá því að fallið hefði verið frá stöðvun á starfsemi hestaleigunnar Sólhesta.

„Í ljósi tiltekinna úrbóta sem gerðar hafa verið á starfsemi hestaleigunnar og einnig vegna ráðningar Gústafs Loftssonar sem bústjóra hefur MAST ákveðið að falla frá áður boðaðri stöðvun.“

12. maí sendi lögfræðingur MAST Sævari Þór svar við andmælum Sólhesta þar sem MAST gerði ýmsar athugasemdir við þau.

„Málið leystist reyndar ekki á grundvelli þeirra heldur vegna úrbóta sem tókst að ná fram með boðuðum þvingunaraðgerðum. Eftirlitsfólk MAST reynir að vanda sig eftir bestu getu í eftirliti þótt vinnubrögð þess séu að sjálfsögðu ekki hafin yfir gagnrýni,“ segir í svarinu.

Þar er rakið efni skoðunarskýrslna og brugðist við gagnrýni á atriði sem varða eftirlit.

„Í andmælunum er því einnig haldið fram að boðuð stöðvun á starfsemi Sólhesta ehf hafi talist óhófleg íhlutun í ljósi þeirra umfangsmiklu úrbóta sem félagið hefur þegar ráðist í og þeirrar samvinnu sem það hefði sýnt. Brot Sólhesta ehf hafi hvorki verið alvarleg né ítrekuð sem sé forsenda fyrir því að stöðvunarheimildinni sé beitt. Þegar MAST nýtir lagaheimild til að boða stöðvun á atvinnustarfsemi er það ekki gert af neinni léttúð. Til þess að það sé gert verða meint brot að teljast alvarleg og/eða ítrekuð.“

Þá eru rifjuð upp andmæli sem sneru að eftirliti 19. og 24. mars.

„Hið rétta er að brotin voru alvarleg (mikið af alltof grönnum hrossum) og sérstaklega ámælisvert þegar hross voru nýtt sem opinber eftirlitsaðili með dýravelferð hafði bannað notkun á, fyrr sama dag. Allar þær úrbætur sem Sólhestar ehf stóðu fyrir voru gerðar eftir að MAST steig inn í þessa atburðarás. Það virtist ekki vera nein vitneskja fyrir hendi hjá umbjóðendum þínum um ástandið á rekstrinum; bara afsakanir yfir ástandinu.“

Í svarinu segir að frávikin hafi verið mjög alvarleg og er þá vísað til þeirra hrossa sem voru metin horuð eða grindhoruð.

„Það var ítrekað bent á þetta í eftirlitsheimsóknum, en ábendingar bárust um að hross í þessu ásigkomulagi voru notuð undir ferðamenn um leið og eftirlitsfólk væri búið að yfirgefa svæðið. Einnig bárust fleiri ábendingar um mjög alvarleg atvik þar sem örmögnun hrossa var lýst og starfsfólk Sólhesta uggandi um velferð hrossanna. Þannig atvik komust eðli málsins samkvæmt ekki í eftirlitsskýrslur enda atvik sem gerðust ekki þegar eftirlitsfólk var á staðnum.“

Þá segir lögfræðingur MAST að það virðist hafa verið rétt ákvörðun að boða stöðvun starfseminnar þar sem úrbætur voru þá gerðar án tafar. Því hafi verið hægt að falla frá boðaðri vinnustöðvun.

„MAST vonast eftir góðri samvinnu við Sólhesta framvegis þannig að velferð hrossanna sé tryggð. Stofnunin mun þó hafa tíðara eftirlit með starfsemi Sólhesta ehf með tilheyrandi kostnaði eftir svona aðgerðir,“ segir í lok svarsins.

#hótaði #mast #starfsemi #stöðva #sólhesta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-04-mast-hotadi-ad-stodva-starfsemi-solhesta-vegna-itrekadara-brota-a-dyravelferdalogum-482957

📰 Aðrar fréttir

Sólveig er hætt að reyna að bjarga syni sínum: „Og hættir smám saman að lifa eigin lífi“
📅 18.09.2026 👁️ 0
Sólveig er hætt að reyna að bjarga syni sínum: „Og hættir smám saman að lifa eigin lífi“
„Ég get ekki bjargað manneskju sem er ekki sjálf tilbúin að taka skrefin í átt að eigin bata,“ segir Sólveig Jancauskiene í nýrri grein, en hún hefur ...
Fleiri andarnefjur rekið á land á Vest­fjörðum í sumar - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 0
Fleiri andarnefjur rekið á land á Vest­fjörðum í sumar - Vísir
„Þetta var í gær, ekki í dag,“ segir Sverrir Fannberg en hann var á ferð um Kjálkafjörð í gær ásamt samstarfsmönnum sínum en þeir tóku eftir bíl sem h...
US and Denmark reach deal over Greenland's security after Trump threats
📅 18.09.2026 👁️ 0
US and Denmark reach deal over Greenland's security after Trump threats
Trump said the agreement will give the US "permanent control over security, and all other needs, in Greenland", though specifics haven't been confirme...
Bandaríkin og Danmörk hafa gert samning um Grænland
📅 18.09.2026 👁️ 1
Bandaríkin og Danmörk hafa gert samning um Grænland
Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá.„Það gleður mig að ti...
Bandaríkin og Danmörk gerðu samning um Grænland
📅 18.09.2026 👁️ 0
Bandaríkin og Danmörk gerðu samning um Grænland
Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu á samfélagsmiðli sínum og Mette Fredriksen forsæ...
Banda­ríkin hafi samið við Dan­mörku um Græn­land - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 1
Banda­ríkin hafi samið við Dan­mörku um Græn­land - Vísir
Í færslunni sem hann birti á miðlinum Truth Social segist hann hafa náð að vinna með ráðamönnum í Danmörku til að tryggja að Bandaríkin muni að eilífu...
Björgunarskip dró skútu til hafnar á Siglufirði
📅 18.09.2026 👁️ 1
Björgunarskip dró skútu til hafnar á Siglufirði
Björgunarskipið Sigurvin dró skútu til hafnar á Siglufirði á sjöunda tímanum í dag. Vandræði komu upp í vél skútunnar og það var ekki nægur byr í segl...
Í­huga að fara nýja leið og bjóða Rússum við­skipta­samninga - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 1
Í­huga að fara nýja leið og bjóða Rússum við­skipta­samninga - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í frétt New York Times en þar er haft eftir tveimur embættismönnum sem sagðir eru þekkja til málsins að samningar v...
Geta stóraukið fræframleiðslu með nýju húsi í Vaglaskógi
📅 18.09.2026 👁️ 0
Geta stóraukið fræframleiðslu með nýju húsi í Vaglaskógi
Framleiðsla á fræjum úr trjátegundinni hrymi gæti stóraukist, eftir byggingu nýs gróðurhúss í Vaglaskógi. Starfsfólk vonast til að fræhöllin skili þei...
Sólveig er hætt að reyna bjarga syni sínum: „Og hættir smám saman að lifa eigin lífi“
📅 18.09.2026 👁️ 1
Sólveig er hætt að reyna bjarga syni sínum: „Og hættir smám saman að lifa eigin lífi“
„Ég get ekki bjargað manneskju sem er ekki sjálf tilbúin að taka skrefin í átt að eigin bata,“ segir Sólveig Jancauskiene í nýrri grein, en hún hefur ...
Logn og ó­virk vél varð til þess að skútan var sótt út á haf - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 1
Logn og ó­virk vél varð til þess að skútan var sótt út á haf - Vísir
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir skútuna hafa verið ansi norðarlega þega...
„Það var bara blanka­logn hjá þeim og þeir voru með ó­virka vél“ - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 1
„Það var bara blanka­logn hjá þeim og þeir voru með ó­virka vél“ - Vísir
Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta í samtali við blaðamann Vísis. Hann segir skútuna hafa verið ansi norðarlega þega...
Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri
📅 18.09.2026 👁️ 1
Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun Verkmenntaskólans á Akureyri
Akureyrarbær ætlar að sjá um framkvæmd viðbyggingar við Verkmenntaskólann í bænum en ríkið greiðir áfram sinn hluta, sextíu prósent. Samkomulag þess e...
KR harmar alvarlegt atvik á fundi Sundsambandsins
📅 18.09.2026 👁️ 1
KR harmar alvarlegt atvik á fundi Sundsambandsins
Formaður KR segir félagið harma alvarlegt atvik sem upp kom milli þjálfara KR og Gróttu á fundi Sundsambands Íslands í gær. Í yfirlýsingu frá Sunddeil...
Trump meinar CNN og Politico aðgang að Hvíta húsinu
📅 18.09.2026 👁️ 1
Trump meinar CNN og Politico aðgang að Hvíta húsinu
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að meina fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW aðgang að Hvíta húsinu tafarlaust. Þetta tilkynnti hann fyrir skömmu...
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg á leið á kjörstað
📅 18.09.2026 👁️ 2
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg á leið á kjörstað
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg á leið á kjörstað Íbú­ar Tam­bov ganga að kjör­borð­inu um helg­ina eft­ir mann­skæð­ar dróna­árás­ir Úkra...
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar
📅 18.09.2026 👁️ 1
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar
Friður er „hættulegt“ orð í rússneskri borg fyrir kosningar Íbú­ar Tam­bov ganga að kjör­borð­inu um helg­ina eft­ir mann­skæð­ar dróna­árás­ir Úkraín...
Bresk þingnefnd rannsakar hvers vegna þjóðinni gengur svona illa í Eurovision – „Núll stig“
📅 18.09.2026 👁️ 2
Bresk þingnefnd rannsakar hvers vegna þjóðinni gengur svona illa í Eurovision – „Núll stig“
Bretar eru búnir að fá nóg af slæmu gengi landsins í Eurovision söngvakeppninni. Þingnefnd hefur verið falið það verkefni að fara ofan í kjölinn á því...
Landspítalinn þarf að hagræða um allt að tvo milljarða
📅 18.09.2026 👁️ 2
Landspítalinn þarf að hagræða um allt að tvo milljarða
Rúmlega 130 milljarðar fara til Landspítalans á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Framlög aukast um rúma átta og hálfan milljarð milli ára. Þrát...
Hætta að prenta bækur eins vinsælasta barnabókahöfundar heims – Neitar ósæmilegri hegðun
📅 18.09.2026 👁️ 2
Hætta að prenta bækur eins vinsælasta barnabókahöfundar heims – Neitar ósæmilegri hegðun
Bókaútgáfan HarperCollins hefur ákveðið að hætta að prenta bækur barnabókahöfundarins David Walliams. Fjallað hefur verið um ósæmilega hegðun hans gag...
Formaður KR harmar líkamsárás sundþjálfara liðsins á sundþjálfara Gróttu
📅 18.09.2026 👁️ 2
Formaður KR harmar líkamsárás sundþjálfara liðsins á sundþjálfara Gróttu
Þórhildur Garðarsdóttir, formaður KR, hefur birt yfirlýsingu á Facebook-síðu félagsins þar sem harmað er atvik sem gerðist í húsakynnum ÍSÍ við Engjat...
Trump rekur CNN og fleiri fjöl­miðla úr Hvíta húsinu - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 2
Trump rekur CNN og fleiri fjöl­miðla úr Hvíta húsinu - Vísir
Frá þessu er greint í færslu sem hann birti á miðlinum Truth Social en þar rökstyður hann, sem fyrr segir, ákvörðunina með því sem hann telur vera ítr...
Frumvarp um bókun 35 afgreitt úr ríkisstjórn
📅 18.09.2026 👁️ 2
Frumvarp um bókun 35 afgreitt úr ríkisstjórn
Frumvarp utanríkisráðherra til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, kennt við Bókun 35, var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Líklegt...
Trump meinar CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu
📅 18.09.2026 👁️ 2
Trump meinar CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu
Trump meinar CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti sak­aði CNN, MS NOW og Politico um að flytja „skáld­ska...
Kastaðist úr bílnum í veltu á Vestfjörðum
📅 18.09.2026 👁️ 2
Kastaðist úr bílnum í veltu á Vestfjörðum
Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús vegna bílveltu sem varð á Barðastrandarvegi á Vestfjörðum á fimmta tímanum. Sjö voru um bor...
Donald Trump says he is banning CNN, Politico and MS NOW from White House
📅 18.09.2026 👁️ 2
Donald Trump says he is banning CNN, Politico and MS NOW from White House
The US president has had a tense and fiery relationship with the US media since returning to office.
Trump says he is banning CNN, Politico and MS NOW from White House
📅 18.09.2026 👁️ 1
Trump says he is banning CNN, Politico and MS NOW from White House
The US president has had a tense and fiery relationship with the US media throughout his political career.
Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 2
Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi - Vísir
Einstaklingur sem var meðvitundarlaus þegar viðbragðsaðila bar að garði var sóttur í kjölfar slyssins og staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltr...
„Við höfum iðu­lega verið tossinn í bekknum“ - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 2
„Við höfum iðu­lega verið tossinn í bekknum“ - Vísir
Þetta segir Margrét Einarsdóttir, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og sérfræðingur í Evrópurétti, í ljósi þess að Norðmenn kynntu sínar ...
Noregskonungur lagður til hvílu í steinkistu sem bindur koltvísýring
📅 18.09.2026 👁️ 2
Noregskonungur lagður til hvílu í steinkistu sem bindur koltvísýring
Noregskonungur lagður til hvílu í steinkistu sem bindur koltvísýring Har­ald­ur V Nor­egs­kon­ung­ur hef­ur ver­ið lagð­ur til hvílu í skipslaga stein...
Verkfall neyðarúrræði því við höfum ekkert annað segja flugvirkjar
📅 18.09.2026 👁️ 2
Verkfall neyðarúrræði því við höfum ekkert annað segja flugvirkjar
Rúmir fimm sólarhringar eru þar til ótímabundið verkfall á þriðja hundrað flugvirkja hjá Icelandair hefst. Eins og hálfs klukkustundar langur fundur h...
Ísland sitji ekki og bíði
📅 18.09.2026 👁️ 2
Ísland sitji ekki og bíði
Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Norðmenn ætla að sýna Evrópusambandinu að þeir séu verðugur bandamaður og láta til sín taka í ákvarðanatöku. Hún segi...
KR-ingar harma sundátökin: „Mikil­vægt að við hlúum hvert að öðru“ - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 2
KR-ingar harma sundátökin: „Mikil­vægt að við hlúum hvert að öðru“ - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í tölvupóstinum sem Garðar Páll Gíslason, formaður sunddeildar, sendir. Þar segir að allir í stjórn félagsins séu h...
Gátu ekki stöðvað útfösun þegar vandræði með neyðarhringingar uppgötvuðust
📅 18.09.2026 👁️ 2
Gátu ekki stöðvað útfösun þegar vandræði með neyðarhringingar uppgötvuðust
Fram kemur í skýrslu Fjarskiptastofu um útfösun 2G og 3G farnetskerfanna að hugmyndir um vandræði við neyðarhringingar hafi ekki komið inn á borð þeir...
Gallego double fires CD Tenerife past Leganés as impressive start continues
📅 18.09.2026 👁️ 2
Gallego double fires CD Tenerife past Leganés as impressive start continues
CD Tenerife continued their excellent start to the season with a 2-0 victory over CD Leganés, as 40-year-old Enric Gallego scored both goals at the He...
Orðið á götunni: Er ráðherrafráhvarf sjúkdómur? – Framsókn er búin að vera
📅 18.09.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Er ráðherrafráhvarf sjúkdómur? – Framsókn er búin að vera
Vandræðagangurinn í kringum Framsóknarflokkinn virðist enga enda ætla að taka. Flokkurinn missti átta þingmenn í síðustu kosningum og fór úr þrettán þ...
Hval rak á land í Kjálkafirði á Barða­strönd - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 4
Hval rak á land í Kjálkafirði á Barða­strönd - Vísir
„Ég var að keyra vestur í Bolungarvík og við vorum bara að koma þarna fyrir fjarðarbotninn eða þessa þverun sem er þarna inni í Djúpafirði og þá sá ég...
„Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 2
„Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ - Vísir
„Ég var að keyra vestur í Bolungarvík og við vorum bara að koma þarna fyrir fjarðarbotninn eða þessa þverun sem er þarna inni í Djúpafirði og þá sá ég...
JP Morgan struggling to forecast oil prices due to US-Iran war
📅 18.09.2026 👁️ 2
JP Morgan struggling to forecast oil prices due to US-Iran war
The bank said it "assumed" there would be economic red lines, like oil at $100 a barrel, that the US would be unwilling the cross.
Vill að gervigreindarlíkön verði búin neyðarrofa
📅 18.09.2026 👁️ 4
Vill að gervigreindarlíkön verði búin neyðarrofa
Ríkisstjóri Kaliforníu hefur skrifað undir tilskipun um þróun neyðarrofa fyrir gervigreind. Í tilskipuninni felur Gavin Newsom ríkisstjóri embættismön...
Þyrlan kölluð út vegna slyss á Vestfjörðum
📅 18.09.2026 👁️ 4
Þyrlan kölluð út vegna slyss á Vestfjörðum
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum vegna umferðarslyss á Vestfjörðum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Lan...
Einn fluttur á sjúkrahús vegna slyss á Vestfjörðum
📅 18.09.2026 👁️ 2
Einn fluttur á sjúkrahús vegna slyss á Vestfjörðum
Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús vegna bílveltu sem varð á Vestfjörðum á fimmta tímanum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson,...
Vilja mun vægari refsingar fyrir skipverjana
📅 18.09.2026 👁️ 4
Vilja mun vægari refsingar fyrir skipverjana
Verjandi annars skipverjanna segir hann ekki hafa komið að skipulagningu á innflutningi fíkniefna. Hann hafi einungis gerst sekur um framkvæmd innflut...
Ryanair boss Michael O'Leary apologises over 'high-fare rapists' remarks
📅 18.09.2026 👁️ 4
Ryanair boss Michael O'Leary apologises over 'high-fare rapists' remarks
O'Leary described his choice of language as "careless" and said "it won't happen again".
Ebóla greinist á nýjum svæðum
📅 18.09.2026 👁️ 4
Ebóla greinist á nýjum svæðum
Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur dreifst á ný svæði í landinu, samkvæmt Læknum á landamæra. Faraldurinn er þegar sá versti í landi...
Hóf störf hjá gervigreindarfyrirtæki en var rekinn 2,5 klukkustundum síðar - Þetta var ástæðan
📅 18.09.2026 👁️ 4
Hóf störf hjá gervigreindarfyrirtæki en var rekinn 2,5 klukkustundum síðar - Þetta var ástæðan
Hinn 35 ára gamli Chris Smalls í Manhattan taldi sig hafa dottið í lukkupottinn þegar hann fékk vinnu hjá stóru gervigreindarfyrirtæki eftir níu mánað...
Hildur ósátt við að vera sökuð um hefndarleiðangur gegn RÚV - „Hefur verið að fjalla um hneykslismál sjálfstæðismanna“
📅 18.09.2026 👁️ 4
Hildur ósátt við að vera sökuð um hefndarleiðangur gegn RÚV - „Hefur verið að fjalla um hneykslismál sjálfstæðismanna“
Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins lýsir yfir sérstakri óánægju með orð Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingflokksformanns Samfylkingar...
Norðmenn hyggjast leggja fangelsisrefsingu á þá sem versla við ísraelska landnema
📅 18.09.2026 👁️ 4
Norðmenn hyggjast leggja fangelsisrefsingu á þá sem versla við ísraelska landnema
Norska ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp sem gerir það refsivert með fangelsi að eiga viðskipti við ísraelska landnema. Utanríkisráðherrann ge...
Stein­hissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ - Vísir
📅 18.09.2026 👁️ 4
Stein­hissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ - Vísir
Skipverjarnir eru sakaðir um að hafa „í félagi“ staðið að innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi til Íslands. Þe...
A Very British Cult: Three men lose appeal for harrassing BBC journalist over documentary
📅 18.09.2026 👁️ 4
A Very British Cult: Three men lose appeal for harrassing BBC journalist over documentary
Kristofer Deichler, Jatinder Kamra and Sukhraj Singh were given community service and restraining orders for their harassment of Catrin Nye.